Páll Vilhjálmsson bloggri sem var dæmdur sekur um ærumeiðandi ummæli að mati Héraðsdóms Reykjavíkur ætlar að áfrýja dómnum til Landsréttar gefist þess kostur. Segir hann niðurstöðuna hafa komið sér á óvart þar sem fyrrum Kjarnamenn séu „þjófsnautar.“
„Niðurstaðan kemur á óvart. Það sem ég sagði og mér var stefnt fyrir er að tveir sakborningar í alvarlegu refsimáli sem eru byrlun og símastuldur ættu beina eða óbeina aðild að málinu. Dómari kemst að þeirri niðurstöðu að það sé brot á æruvernd. En ef að menn eru sakborningar í máli. Þá eiga þeir aðild að því. Þess vegna er það mótsögn að dæma þetta ómerkt,“ segir Páll.
Hann bendir á að rannsókn lögreglu beinist m.a. símastuldi. „Blaðamenn Kjarnans fengu efni úr síma Páls Steingrímssonar sem var byrlað. Þannig að þeir eru í það minnsta þjófsnautar. Búið er að sýna fram að símanum var stolið og ef maður er þjófsnautur, þ.e. nýtur ágóða af einhverju broti. Þá á maður aðild,“ segir Páll.
Hann segist ætla að óska eftir áfrýjun til Landsréttar og muni gera það gefist þess kostur.