Skattspor starfsemi Arnarlax á síðasta ári var nærri 1,5 milljarðar, ef við greidda og innheimta skatta er bætt tekjuskatti vegna ársins sem greiddur var í byrjun þessa árs. Er þetta í fyrsta skipti sem Arnarlax greiðir tekjuskatt enda fyrirtækið verið í uppbyggingu og ekki farið að skila raunverulegum hagnaði fyrr en nú, að því er segir í umfjöllun Morgunblaðsins.
Arnarlax fékk pwc til að taka saman upplýsingar um samfélagspor Arnarlax árið 2022, eins og gert hefur verið síðustu ár. Samfélagsspor sýnir með einföldum hætti framlag fyrirtækisins til samfélagsins, meðal annars í formi skatta og opinberra gjalda.
Í samantekt um skattaspor fyrirtækisins sést að öll gjöld hafa vaxið mjög síðustu fjögur ár og mörg þeirra margfaldast. Í ár bætist við 149 milljóna króna tekjuskattur vegna hagnaðar á árinu 2022. Hann er greiddur í byrjun árs 2023.