Sjávarhiti við Suður- og Vesturland vel hár

Í byrjun nóvember þegar Bjarni Sæmundsson HF 30 kom til …
Í byrjun nóvember þegar Bjarni Sæmundsson HF 30 kom til hafnar á Húsavík en hann var í haustleiðangri Hafró. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Sjáv­ar­hiti í efstu 200 metr­um sjáv­ar í hlý­sjón­um úti fyr­ir Suður- og Vest­ur­landi mæld­ist vel yfir meðaltali tíma­bils­ins 1991-2020 í leiðangri rann­sókna­skips­ins Bjarna Sæ­munds­son­ar í fe­brú­ar. Var hita­stigið 7,1 til 8,2 gráður.

Þetta er meðal niðurstaðna sjó­rann­sókna­leiðang­urs­ins skips­ins og fjallað er um á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Frávik meðalhita í efstu 200 metrum sjávar á stöðvum 3-5 …
Frá­vik meðal­hita í efstu 200 metr­um sjáv­ar á stöðvum 3-5 á Sel­vogs­banka frá meðaltali ár­anna 1991-2020. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Þar seg­ir að selt­an í sjónu út af Suður- og Vest­ur­landi hafi verið und­ir meðaltali viðmiðun­ar­tíma­bils­ins en hún hef­ur til þessa farið hægt vax­andi und­an­far­in ár frá lág­marki sem mæld­ist árið 2018. Þetta er sagt gefi til kynna að hlý­sjór­inn að sunn­an hafi verið með svipuðum styrk og und­an­far­in ár.

Hiti og selta úti fyr­ir Norður­landi ná­lægt meðaltali viðmiðun­ar­tíma­bils­ins 1991-2020 en hiti í efri lög­um úti fyr­ir Norður­landi var á bil­inu tvær til fjór­ar gráður og bæði hiti og selta höfðu hækkað lít­il­lega miðað við sein­ustu þrjú ár.

Í efstu lög­um sjáv­ar út af Norðaust­ur- og Aust­ur­landi var hit­inn á bil­inu núll til þrjú stig og var það bæði yfir land­grunn­inu og utan þess. Það er sagt nærri meðallagi viðmiðun­ar­tíma­bils­ins fyr­ir þenn­an árs­tíma en selta á þessu svæði var tölu­vert lægri en meðal­selta viðmiðun­ar­tíma­bils­ins.

Sjávarhiti á 50 m dýpi í hafinu umhverfis Ísland, í …
Sjáv­ar­hiti á 50 m dýpi í haf­inu um­hverf­is Ísland, í fe­brú­ar 2023. Punkt­arn­ir sýna mælistöðvarn­ar. Mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Hiti mæld­ur í sjö ára­tugi

„Leiðang­ur­inn var þátt­ur í gagna­söfn­un í verk­efn­inu „Ástand sjáv­ar” en mark­mið þess er að fylgj­ast með breyt­ing­um á um­hverfisaðstæðum á Íslands­miðum. Frá því um 1950 hafa farið fram mæl­ing­ar á hita og seltu á ákveðnum stöðum á land­grunn­inu að vori eða í byrj­un sum­ars. Um 1970 var farið að mæla end­ur­tekið á þess­um föstu mælistöðvum, oft­ast fjór­um sinn­um á ári, í fe­brú­ar-mars, maí-júní, ág­úst-sept­em­ber og í októ­ber-nóv­em­ber. Stöðvarn­ar mynda lín­ur eða snið út frá land­inu sem eru flest nefnd eft­ir kenni­leit­um á landi en í leiðangr­in­um í fe­brú­ar var mælt á 72 stöðvum,“ seg­ir um leiðang­ur­inn á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Sjó­rann­sókna­leiðang­ur Bjarna Sæ­munds­son­ar um­hverf­is Ísland hófst 8. fe­brú­ar og lauk 20. þess mánaðar.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina