Birnu dreymir ekki um frægðina

Í myndveri Dagmála mætti til blaðamanns leikkonan fjölhæfa, Birna Rún Eiríksdóttir. Hún hefur komið víða við á ferlinum sem einskorðast ekki einungis við leikkonustarfið. Birna vill gjarnan leikstýra og skrifa meira, en auk þess er hún TikTok-stjarna sem veit ýmislegt um hvernig á að markaðssetja sig, eða vörur, á þeim ágæta miðli sem nú tröllríður öllu.

Heimurinn er á TikTok

Birna er sjálf með TikTok-reikning, en hún fór fyrst að skoða TikTok fyrir alvöru fyrir nokkrum árum.

„Ég laumast með smá grín þarna inn á og svo kom mér það á óvart hvað þetta var fljótt að vaxa og ég er með tæplega ellefu þúsund fylgjendur. Ári seinna er þetta mín helsta vinna og er ástæðan fyrir því að ég er í raun orðin skemmtikraftur. Ég hef svo verið að skoða þetta form en mitt hliðaráhugamál er markaðsmál,“ segir Birna og segist í kjölfarið hafa farið í samstarf við fyrirtæki og auglýsingastofur sem vilja nýta sér TikTok.

„Markaðsstofan Kvartz hafði samband við mig og þá varð til þessi TikTok-þjónusta, þar sem fólk getur fengið ráðgjöf hjá mér,“ segir Birna og hún segir TikTok vera framtíðina.

„Heimurinn er á TikTok!“ segir Birna og segir meira en nóg að gera í þessum bransa.

Laddi er yndislegur

Um páskana kemur á skjáinn hjá Sjónvarpi símans Arfurinn minn, þriðja og síðasta serían um Benedikt, sem Laddi leikur. Birna leikur þar tengdadóttur Benedikts.

Birna leikur á móti Ævar Þór Benediktssyni í Arfinum mínum.
Birna leikur á móti Ævar Þór Benediktssyni í Arfinum mínum.

„Það er algjörlega dásamlegt að leika með Ladda. Hann er yndislegur maður frá toppi til táar. Hann er maður sem allir geta lært af,“ segir Birna og segir tökurnar hafi farið fram í desember síðastliðnum og allt gengið að óskum.

Birna heldur nú áfram að vinna að fjölbreyttum verkefnum.

„Ég er á góðri leið í átt að markmiðum mínum og hlakka til að fá leikstýra meira,“ segir Birna og segist alls ekki slá hendinni á móti góðum hlutverkum.

„Mér finnst alltaf gaman að leika og hætti því aldrei,“ segir Birna og segist ekki dreyma um frægð og frama í Hollywood.

„Mér finnst meira spennandi að gera flott skandinavískt efni; kvikmyndir og sjónvarp.“

Viðtalið í heild er opið áskrifendum hér. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: