Bellagio-hótelið í Las Vegas opinberaði nýlega myndir er sýna 110 milljón dala endurbætur sem gerðar hafa verið á herbergjum og svítum í Spa Tower. Uppfærða útlitið er í anda Como-vatns á Ítalíu en sá staður er vel þekktur af aðalsfólki og á mikið af frægu og ríki fólki eignir þar.
„Skuldbinding Bellagio um að veita gestum okkar óviðjafnanlega gistingu, upplifun og þjónustu er aðalsmerki okkar,“ sagði Ann Hoff framkvæmdastjóri Bellagio-hótelsins.
„Fallegar og glæsilegar nýjar svítur og gestaherbergi Spa Tower munu styrkja stöðu okkar sem eins af fremstu áfangastöðum ferðaiðnaðarins.“
Endurhönnunin Spa Tower, sem inniheldur 819 herbergi og 104 svítur, á að ljúka í október næstkomandi, en hægt verður að bóka og dvelja í fyrstu uppfærðu herbergjunum frá og með júlí.
Svíturnar voru hannaðar í samstarfi við Champalimaud Design og er lýst sem „róandi, hlutlausum og í jarðtónum“ sem ætlað er að líkja eftir því sem hótelið kallar „náttúrulegan lífleika“ Como-vatns og Alpanna. Hönnunarteymið tók þetta bókstaflega.
Í herbergjunum er að finna fallega liti – granatlit sem á að tákna granatepli sem finnast við strendur Miðjarðarhafsins, bláa liti innblásna af vatninu og ljósa liti sem eiga að láta þér líða eins og þú sért á göngu í litlu þorpi á Norður-Ítalíu.
„Við vildum skapa tímalausa lúxustilfinningu, sem væri einstök fyrir Bellagio-hótelið,“ sagði Winston Kong hjá Champalimaud Design í yfirlýsingu við Travel + Leisure.