Háafell lætur smíða nýjan fóðurpramma

Háafell hefur undirritað samning um smíði nýs fóðurpramma fyrir félagið.
Háafell hefur undirritað samning um smíði nýs fóðurpramma fyrir félagið. Mynd/Háafell

Háa­fell, sem stund­ar fisk­eldi á Vest­fjörðum, hef­ur ákveðið að láta smíða nýj­an fóðurpramma og hef­ur und­ir­ritað samn­ing þess efn­is við JT Electric í Fær­eyj­um. Um er að ræða ten­gilt­vinnpramma bú­inn nýj­ustu vatns­fóðrun­ar­tækni sem ger­ir hann spar­neytn­ari og ekki síst um­hverf­i­s­vænni.

Í til­kynn­ingu frá Háa­felli seg­ir að nýi pramm­inn verði staðsett­ur á nýju svæði Háa­fells í Kof­ra­dýpi, en fyr­ir á fé­lagið fóðurpramm­ann Ögur­nes sem staðsett­ur er við Skarðshlíð í Ísa­fjarðar­djúpi.

Hinn nýi prammi er sagður þola veru­lega öldu­hæð. „HS stuðull­inn er 5,5 m sem þýðir að pramm­inn á að þola allt að 11 metra háa öldu, en auk þess er stefni fram­an á pramm­an­um sem ger­ir það að verk­um að hann fer bet­ur í sjón­um.“

Þá mun pramm­inn geta borið 480 tonn af fóðri full­lestaður, auk þess sem er 5 tonna síló fyr­ir hrogn­kelsa­fóður. Burðarget­an er þó sögð tölu­vert meiri þar sem sér­stak­lega var gætt að stöðug­leika í tengsl­um við ís­ingu. Öll kerfi um borð eru fullsjálf­virk og hægt að fjar­stýra þeim frá landi.

Áætlan­ir gera ráð fyr­ir af­hend­ingu nýs pramma þegar í ág­úst næst­kom­andi.

Nýi prammi Háafells verður hinn glæsilegasti.
Nýi prammi Háa­fells verður hinn glæsi­leg­asti. Mynd/​Háa­fell

Sagður um­hverf­i­s­vænni

„Áhersla var lögð á að pramm­inn væri um­hverf­i­s­vænn, bæði í orku­bú­skap og rekstri. Til dæm­is er pramm­inn bú­inn bæði spenni til þess að geta tekið við raf­magni úr landi en einnig batte­rí kerfi, svo­kölluðu hybrid kerfi sem hægt er að nota þar sem land­teng­ing­ar eru ekki mögu­leg­ar.  Þegar hybrid kerfið er notað knýr batte­rí öll kerf­in um borð, en ljósa­vél­in er nýtt til þess að hlaða inn á batte­rí­in. Með þessu má stytta keyrslu­tíma ljósa­vél­anna úr sóla­hring­skeyrslu niður í aðeins tvær til fjór­ar klukku­stund­ir á sól­ar­hring. Þessi ráðstöf­un stór­bæt­ir ekki bara ork­u­nýtni held­ur dreg­ur einnig úr eldsneyt­is­notk­un, lækk­ar kol­efn­is­los­un og hávaðameng­un,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

At­hygli vek­ur að pramm­inn er bú­inn sjó­inn­taki sem hægt er að nýta til vatns­fóðrun­ar, en það fel­ur í sér að fóðrinu er dælt með sjó í stað þess að því sé blásið. Kost­irn­ir við vatns­fóðrun eru sagðir vera mun minni orku­notk­un þar sem aðeins þarf litl­ar dæl­ur til að fleyta sjón­um með fóðrinu og minna slit á rör­un­um, en nú slitna rör­in yfir tíma vegna viðnáms fóðurs­ins við rör­in þegar því er blásið.

Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri Háafells, segir að nýr fóðurprammi sem félagið …
Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells, seg­ir að nýr fóðurprammi sem fé­lagið hef­ur ákveðið að láta smíða sé skref í átt að sjáfbær­um rekstri. Ljós­mynd/​Háa­fell

„Með kaup­um á þess­um pramma erum við aft­ur að stíga stór skref í átt að sjálf­bær­ari rekstri þar sem pramm­inn verður bæði með land­teng­ing­ar mögu­leika og með hybrid kerfi með öfl­ugu batte­ríi. Þessu til viðbót­ar er það afar gleðilegt skref að pramm­inn sé til­bú­in und­ir vatns­fóðrun og mun­um við fylgj­ast grannt með þró­un­inni í þeim efn­um og byrja að nota þann mögu­leika um leið og færi gefst,“ seg­ir Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells.

„Við erum stolt af þess­ari nýju hönn­un sem við höf­um unnið að síðustu sex mánuði. Starfs­fólk okk­ar hef­ur unnið náið með Háa­felli að hönn­un á þess­um pramma, þar sem sér­stakt til­lit hef­ur verið tekið til krefj­andi aðstæðna á Vest­fjörðum,“ seg­ir Suni Just­in­us­sen, for­stjóri JT electric.

mbl.is