Nú þegar sumardagurinn fyrsti er genginn í garð styttist biðin eftir sumarfríinu óðum. Sólareyjan Tenerife er vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga og eflaust nokkrir sem bíða spenntir eftir að komast þangað og smella jafnvel einni tásumynd.
Til að stytta biðina er tilvalið að byrja að pæla í litavali á neglurnar, en eftirfarandi litum er spáð miklum vinsældum í sumar.
Kóral-bleikur
Allskyns bleikir tónar hafa verið áberandi í fótsnyrtingu á sumrin, þá ekki síst kóral-bleikur. Liturinn fer sérlega vel við sólkyssta húð, en ef þú ert með ljósari húð er mælt með því að fara frekar í ferskjulitaðan.
Appelsínugulur
Appelsínugult naglalakk í anda hins vinsæla drykkjar Aperol Sprtiz á eftir að slá í gegn í sumar. Það er ekki fjarri lagi að sitja í sólinni og sötra á drykknum með tásur í stíl.
Ljósblár
Liturinn er ljúfur og látlaus en gerir samt mikið. Það er hægt að leika sér mikið með ljósbláa litinn og fara jafnvel aðeins út í fjólubláan ef maður er í stuði. Það eru margir möguleikar í boði en ljósblái liturinn passar við allt.
Barbie-bleikur
Glöggir lesendur hafa líklega tekið eftir Barbie-æðinu sem tröllreið tískuheiminum á síðasta ári. Nú virðist liturinn vera að færa sig yfir á neglurnar, enda litur sem einfaldlega klikkar ekki.
Skærgrænn
Ef þig langar að bæta smá litagleði í fataskápinn en ert ekki tilbúin í að fjárfesta í skærum flíkum er tilvalið að byrja á nöglum. Skærgrænn er fullkominn sumarlitur enda tónar hann fallega við sólkyssta húðina og fangar augað.