Mikilvægt að valda fiskinum sem minnstri streitu

Eva Dögg Jóhannesdóttir segir áhugaverðar tilraunir í gangi þar sem …
Eva Dögg Jóhannesdóttir segir áhugaverðar tilraunir í gangi þar sem leysigeisli er notaður til að drepa lýs sem hafa fest sig á laxa. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ef eld­is­fisk­ur er stressaður aukast lík­urn­ar á sýk­ing­um. Það sama gild­ir um hvers kyns meðhöndl­un á fisk­in­um og eru hreist­ur hans og slím­húð viðkvæm fyr­ir hnjaski. Streita í aðdrag­anda slátr­un­ar flýt­ir fyr­ir dauðast­irðnun og rýr­ir gæði.

Í síðasta blaði 200 mílna seg­ir Eva Dögg Jó­hann­es­dótt­ir, sjáv­ar­líf­fræðing­ur og gæða- og um­hverf­is­stjóri GeoSalmo, að í grein­inni hafi orðið vit­und­ar­vakn­ing hvað snert­ir vel­ferð fisk­anna: „Sú var tíð að fólk leit svo á að fisk­ur væri bara fisk­ur, en nú er það að breyt­ast og t.d. rík áhersla lögð á það að valda eld­is­fisk­um sem minnstri streitu, og gæta vel að vel­ferð fisks­ins í gegn­um allt lífs­ferlið.“

Hún seg­ir vax­andi áherslu á dýra­vel­ferð hald­ast í hend­ur við hags­muni eld­is­fyr­ir­tækj­anna og er t.d. streitt­ur fisk­ur viðkvæm­ari fyr­ir sýk­ing­um sem get­ur þýtt að meiri af­föll verði í eld­inu eða að gæði loka­vör­unn­ar verði lak­ari.

Eva Dögg segir vitundarvakningu hafa orðið í tengslum við velferð …
Eva Dögg seg­ir vit­und­ar­vakn­ingu hafa orðið í tengsl­um við vel­ferð eld­is­fiska. Ljós­mynd/​Aðsend

„Það er margt sem get­ur valdið fisk­um streitu. Þannig get­ur meðhöndl­un, hávaði og snögg­ar breyt­ing­ar á um­hverfi valdið streitu. Við höf­um líka lært að það skipt­ir miklu máli hvernig fisk­ur er tek­inn upp úr kví­um og kerj­um: er venj­an sú að þrengja að fisk­in­um s.s. þegar kví­ar eru tæmd­ar, en ef það er þrengt of hratt að hon­um þá veld­ur það mik­illi streitu.“

Þá er brýnt að lág­marka hvers kyns meðhöndl­un á fisk­in­um því bæði er hún streitu­vald­andi og eins get­ur nudd og nún­ing­ur skaddað hreist­ur og slím­húð fisks­ins: „Þá hafa ör­ver­ur greiðari aðgang að fisk­in­um og geta valdið sýk­ingu,“ út­skýr­ir Eva og bæt­ir við að hún fylg­ist spennt með fram­förum í mynda­véla­tækni sem ger­ir kleift að vakta ástand fiska í raun­tíma, og nota mynd­grein­ingu til að koma augu á mögu­leg vanda­mál sem kallað gætu á inn­grip, t.d. vegna laxal­ús­ar. „Er meira að segja verið að gera til­raun­ir með tækni sem bygg­ist á að sam­nýta mynda­vélagrein­ingu og leysi­geisla sem drep­ur lús­ina.“

Lesa má viðtalið í heild sinni í síðasta blaði 200 mílna.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: