Ofurfyrirsæta komin á fast með huldumanni

Fyrirsætan Paulina Porizkova virðist vera komin á fast.
Fyrirsætan Paulina Porizkova virðist vera komin á fast. Skjáskot/Instagram

Aðdáendum fyrirsætunnar Paulinu Porizkova brá heldur í brún þegar hún deildi skuggalegri mynd af sér með huldumanni, en af myndinni að dæma virðist fyrirsætan vera komin á fast.

„Ástin er í loftinu,“ skrifaði Porizkova við myndina þar sem hún deilir kossi með huldumanninum. Fyrirsætan hefur ekki gefið upp hver sá heppni sé og hann er ekki merktur inn á myndina.

Gekk út af miðju stefnumóti

Porizkova hefur talað opinskátt um ástarlíf sitt síðustu ár, en í janúar síðastliðnum sagði hún skort vera á almennilegum einhleypum karlmönnum. Hún sagði að í 75% tilfella snúist stefnumót um að gagnrýna fyrrverandi eiginkonur karlanna, en hún var orðin ansi þreytt á að heyra sömu sorglegu söguna.

„Síðast þegar það gerðist stóð ég upp í miðjum kvöldverði og gekk út. Ég beið ekki einu sinni eftir því að forrétturinn kæmi. Ég hugsaði bara: „Veistu hvað? Gangi þér vel að finna heilbrigða konu. Ég er farin“,“ sagði hún í samtali við Page Six.

mbl.is