Stefna á að selja íslenskan lax í Asíu

Agnes Guðmundsdóttir segir mikil tækifæri í sölu íslenskra eldisafurða í …
Agnes Guðmundsdóttir segir mikil tækifæri í sölu íslenskra eldisafurða í Asíu.

Icelandic Asia er nú í start­hol­un­um með sölu og markaðssetn­ingu ís­lensks eld­islax í Asíu. Agnes Guðmunds­dótt­ir, starfsmaður í markaðs og vöruþróun, seg­ir í Morg­un­blaðinu gíf­ur­leg tæki­færi í markaðssetn­ingu og sölu ís­lenskra eldisaf­urða í Asíu.

Fram­leiðsla eldisaf­urða á Íslandi hef­ur vaxið hratt und­an­far­in ár og má bú­ast við frek­ari vexti á kom­andi árum.

Agnes, sem flutti ný­verið til Jap­ans, seg­ir að staða ís­lenskra sjáv­ar­af­urða sé góð í Asíu hvort sem litið er til Jap­ans, Suður-Kór­eu, Taív­an eða Kína. „Það er mik­il eft­ir­spurn eft­ir okk­ar vör­um. Við erum alltaf að kepp­ast við að tryggja bestu gæði og við erum mjög framar­lega á því sviði. Íslensk­ar sjáv­ar­af­urðir eru með já­kvætt orðspor í Asíu vegna áreiðan­leika í gæðum“

Nán­ar er rætt við Agnesi í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: