Hollywood-leikarinn Jason Momoa er þekktur fyrir að vera í svakalegu formi. Leikarinn úr Aquaman mætir ekki bara á hlaupabrettið og tekur svo hringinn í lyftingarsalnum eins og venjulegt fólk. Hann fer öðruvísi og áhugaverðari leiðir til þess að hreyfa sig.
Bekkpressur og réttstöðulyftur eru ekki fyrir leikarann Momoa eins og fram kemur á vef Men's Health þar sem hann er í löngu viðtali.
Flestir sem hafa stigið inn í líkamsræktarstöð á síðustu tíu árum kannast við ketilbjöllur. Momoa sveiflar þeim grimmt til að halda sér í formi og styrkja magavöðva og handleggi.
Leikarinn boxar og til þess að gera æfinguna erfiðari setur hann teygju utan púðann og mitti sitt.
Momoa er maður náttúrunnar og til að styrkja miðjuna skríður hann um eins og björn. Hann fer bæði fram og aftur á fjórum fótum en passar að hnén snerti ekki gólfið.
Momoa elskar að klifra og góð klifuræfing fær hjartað til að slá aðeins hraðar og reynir auðvitað á allan líkamann.