Methagnaður hjá eiganda Arctic Fish

Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Félagið skilaði jákvæðri rekstrarniðurstöðu …
Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Félagið skilaði jákvæðri rekstrarniðurstöðu sem nam 858 miljjónum króna, en methagnaður varðð hjá móðurfélaginu. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Arctic Fish fram­leiddi 4.866 tonn af eld­islaxi á fyrsta árs­fjórðungi og námu tekj­ur fé­lags­ins 10,3 millj­ón­um, en það er jafn­v­irði rúm­lega 1.550 millj­óna ís­lenskra króna. Rekstr­arniðurstaða Arctic Fish var 5,7 millj­ón­ir evra fyr­ir skatt og fjár­magnsliði, jafn­v­irði rúm­lega 858 millj­óna ís­lenskra króna.

Þetta má lesa í upp­gjöri norska fisk­eld­isris­ans Mowi, sem er eig­andi Arctic Fish.

Mowi skilaði met­hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar­inn­ar í Osló kem­ur fram að hagnaður árs­fjórðungs­ins hafi verið 322 millj­ón­ir evra, jafn­v­irði rúm­lega 48 millj­arða ís­lenskra króna, en hagnaður á sama tíma­bili á síðasta ári nam 207 millj­ón­um evra.

Sam­hliða met­hagnaði var met­velta hjá fé­lag­inu og nam hún 1.362 millj­ón­um evra sem er jafn­v­irði 205 millj­arða ís­lenskra króna.

Mowi skilaði methagnaði á fyrrsta ársfjórðungi.
Mowi skilaði met­hagnaði á fyrrsta árs­fjórðungi. Ljós­mynd/​Mowi

Mowi fram­leiddi 103 þúsund tonn af laxi á fyrsta árs­fjórðungi en áætlan­ir gerðu ráð fyr­ir 98 þúsund tonn­um. Fé­lagið starf­ræk­ir eldi í Nor­egi, Skotlandi, Írlandi, Íslandi, Fær­eyj­um, Kan­ada og Síle.

Mowi er stærsti fram­leiðandi á eld­islaxi í heim­in­um og nam fram­leiðsla fé­lags­ins í fyrra 464 þúsund tonn­um sem var met í sögu Mowi en gert er ráð fyr­ir að fram­leiðsla árs­ins 2023 verði 484 þúsund tonn.

Hátt verð

„Hátt verð og frá­bær rekstr­ar­frammistaða hjá 11.500 sam­starfs­mönn­um mín­um í 25 lönd­um um all­an heim gerðu fyrsta árs­fjórðung­inn besta árs­fjórðung Mowi frá upp­hafi. Sam­an­borið við fyrsta árs­fjórðung í fyrra erum við að standa okk­ur bet­ur á öll­um mæli­kvörðum,“ er haft eft­ir Ivan Vind­heim, for­stjóra Mowi, í til­kynn­ing­unni.

„Mark­mið Mowi er að halda áfram að auka markaðshlut­deild í laxa­flokkn­um á næstu árum með því að auka eld­is­magn okk­ar,“ seg­ir Vind­heim.

Verð á laxi er enn hátt og nam meðal­verð á mörkuðum í síðustu viku 111,69 norsk­um krón­um á kíló sam­kvæmt laxa­vísi­tölu Nas­daq, jafn­v­irði 1.461 ís­lenskr­ar krónu. Það er 1,45% hærra verð en var vik­una á und­an, 0,18% hærra en fjór­ar vik­ur á und­an og 22,68% hærra verð en tólf vik­um á und­an.

Ivan Vindheim, forstjóri Mowi.
Ivan Vind­heim, for­stjóri Mowi. Ljós­mynd/​Mowi

Harma fyr­ir­hugaðan skatt

Í til­kynn­ing­unni er vak­in at­hygli á að norska rík­is­stjórn­in hafi 28. mars síðastliðinn lagt fyr­ir Stórþingið til­lögu að nýj­um skatti á sjókvía­eldi, svo­kallaða grunn­leigu. Þar voru gerðar nokkr­ar breyt­ing­ar á þeim til­lög­um sem kynnt­ar voru í sept­em­ber í fyrra. Er nú lögð til grunn­leiga sem nem­ur 35% í stað þeirra 40% sem upp­haf­lega var lagt upp með.

Full­yrðir Mowi að samþykkt frum­varps­ins myndi verða til þess að jaðarskatt­ur á sjókvía­eldi myndi nema 57%, s.s. grunn­leiga auk tekju­skatti lögaðila. Jafn­framt að skatt­ur­inn gæti orðið allt að 75% ef tekið er til­lit til auðlegðarskatts.

„Þetta er al­gjör­lega óhóf­legt og sam­rým­ist ekki yf­ir­lýst­um vaxt­ar­metnaði norsku rík­is­stjórn­ar­inn­ar fyr­ir grein­ina. Verði þetta samþykkt af þing­inu mun nýja skatta­fyr­ir­komu­lagið vera gríðarlega skaðlegt fyr­ir norska fisk­eldið,“ seg­ir Vind­heim í til­kynn­ing­unni.

mbl.is