Fyrsta Hringborð fiskeldis verður haldið í Reykjavík

Fulltrúar íslenskra fiskeldisfyrirtækja hittust á mánudag og ræddu Hringborð fiskeldis. …
Fulltrúar íslenskra fiskeldisfyrirtækja hittust á mánudag og ræddu Hringborð fiskeldis. Stefnt er að fyrstu ráðstefnunni í júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ný sam­tök um Hring­borð fisk­eld­is (Icelandic Aquacult­ure and Oce­an For­um, IAOF) stefna að því að halda fyrstu ráðstefnu sína í Reykja­vík 1. og 2. júní næst­kom­andi. Aðild að sam­tök­un­um eiga flest starf­andi fisk­eld­is­fyr­ir­tæki á land­inu og er Ari­on banki sér­stak­ur stuðningsaðili þeirra.

Markið er sett hátt og er stefnt að því að Hring­borð fisk­eld­is verði vett­vang­ur alþjóðlegs sam­starfs og miðlun­ar þekk­ing­ar um fisk­eldi í sjó og á landi, áskor­an­ir tengd­ar lofts­lags­breyt­ing­um, nýt­ingu og aðra þætti sem hafa grund­vall­arþýðingu fyr­ir sjálf­bæra þróun eld­is hér á landi, að því er frma kom í Morg­un­blaðinu í gær.

„Við vilj­um eiga þetta spjall við yf­ir­völd og helstu stofn­an­ir um framtíðarmark­mið og stefnu­mót­un á sviði fisk­eld­is. Grund­völl­ur­inn er að miklu leyti skýrsla Bost­on Consulting Group [um stöðu og framtíð lagar­eld­is á Íslandi],“ út­skýr­ir Kjart­an Ólafs­son, stjórn­ar­formaður Hring­borðs fisk­eld­is.

„Það eru gríðar­stór verk­efni framund­an og þetta eru ein­hver stærstu einkafram­kvæmd­ir Íslands­sög­unn­ar. Það hef­ur verið fjár­fest gríðarlega í sjókvía­eldi og eru stór­ar fjár­fest­ing­ar í gangi á landi og það er þörf á skýr­ari lang­tíma­mark­miðum,“ út­skýr­ir Kjart­an og vís­ar meðal ann­ars til þeirra stóru fjár­fest­inga­verk­efna sem stefna að fram­leiðslu tugþúsunda tonna af eld­islaxi á landi.

Lesa má um­fjöll­un Morg­un­blaðsins í heild hér.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: