Vaxandi umræða hefur verið um hugsanleg áhrif stórfelldrar vinnslu vatns vegna uppbyggingar fiskeldis í Ölfusi, vestan Þorlákshafnar. Sérfræðingar telja að óvissa ríki um áhrif vatnstökunnar á grunnvatn og að hún megi ekki leiða til þess að skortur verði á vatni hjá vatnsveitum samfélagsins, á næstu árum eða í framtíðinni, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.
Skipulagsstofnun fjallar sérstaklega um þetta atriði í áliti á umhverfismati fyrir landeldisstöð Geo Salmo. Telur stofnunin nauðsynlegt að tekin verði upp sameiginleg vöktun allra fyrirtækja sem starfa á svæðinu og uppbygging seinni áfanga starfseminnar verði ákveðin í samræmi við niðurstöður á vöktun fyrri áfanga.
Þótt landeldisstöðvarnar grundvalli starfsemi sína og áform meira á jarðsjó en ferskvatni getur umfangsmikil vinnsla á jarðsjó úr borholum haft áhrif á grunnvatnsstrauminn sem kemur úr fjalllendinu og nær alveg upp í Bláfjöll.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.