Le Procope er eitt elsta veitingahúsið í Parísarborg og er staðsett í hjarta Saint-Germain des Prés hverfisins. Le Procope er virðulegur staður sem var stofnaður 1686 af Francesco Procopio dei Coltelli og er flokkaður sem ekki bara elsti veitingastaður í París, heldur sem elsti starfandi veitingastaður í heimi, þar sem það hefur tekið á móti fjölda frægu fólki eins og Voltaire franskur rithöfundur og heimspekingur og Benjamín Franklín svo dæmi séu tekin.
Le Procope er goðsagnakenndur veitingastaður í 6. hverfi Parísar. Le Procope er staður sem er samofin sögu og menningu Parísarborgar þar sem mestu rithöfundar og menntamenn söfnuðust saman og báru saman bækur sínar. Segja má að Le Procope bjóði upp á hefðbundna franska matargerð í ætt við bistro og ýmsa sérrétti. Á matseðlinum er að finna marga fræga franska rétti eins og franska gratíneraða lauksúpu, sólkola, andalifur, osso buco og crème brûlée svo fátt sé nefnt.
Veitingastaðurinn skartar íburðarmiklum og glæsilegum innréttingum ásamt antíkhúsgögnum, málverkum, ljósakrónum og mörgum ólíkum minjagripum allt frá dögum Napóleons og mörgum öðrum sögulegum munum sem og veggfóðrinu frá 1830 sem stór hluti af franskri sögu innan veggja staðarins. Innréttingarnar innihalda einnig panelklæðningar, spegla, olíumálverk og andlitsmyndir af sögulegum og frægum viðskiptavinum sem hengdar eru upp á veggjum veitingastaðarins. Jafnframt eru endurgerðir bólstraðir stólar sem gerir þennan skemmtilega og áhugaverða veitingastað meira eins og eitt af söfnunum í París.