Nordhammer nýr stjórnarformaður Arnarlax

Leif Inge Nordhammer, fyrrverandi forstjóri SalMar og stjórnarmaður í fyrirtækinu …
Leif Inge Nordhammer, fyrrverandi forstjóri SalMar og stjórnarmaður í fyrirtækinu er nýr stjórnarformaður Arnarlax. Samsett mynd

Leif Inge Nor­d­hammer, fyrr­ver­andi for­stjóri SalM­ar og stjórn­ar­maður í fyr­ir­tæk­inu, tek­ur við sem stjórn­ar­maður Arn­ar­lax á aðal­fundi fé­lags­ins sem hald­inn verður í dag. Þá tek­ur stofn­andi SalM­ar, stærsti eig­andi og stjórn­ar­formaður fyr­ir­tæk­is­ins, Gustav Witzøe, sæti í stjórn­inni.

Kjart­an Ólafs­son fram­kvæmda­stjóri, sem verið hef­ur stjórn­ar­formaður í Arn­ar­lax nán­ast frá upp­hafi starf­sem­inn­ar, verður áfram í stjórn en nú sem al­menn­ur stjórn­ar­maður. Aðrir í stjórn verða Ulrik Stein­vik og Espen Weyer­gang Marcus­sen. Kem­ur þetta fram í fund­ar­boði sem sent hef­ur verið út.

Arn­ar­lax er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins. Það er með sjó­eldi í Arnar­f­irði og fleiri fjörðum Vest­fjarða, laxa­vinnslu á Bíldu­dal og seiðastöðvar á Suður­landi.

SalM­ar er norskt fisk­eld­is­fyr­ir­tæki og einn af stærstu laxa­fram­leiðend­um heims. Það á meiri­hluta hluta­fjár í Arn­ar­laxi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: