Það væsir ekki um fyrirsætuna Hailey Bieber og eiginmann hennar, tónlistarmanninn Justin Bieber, sem eru um þessar mundir stödd í sannkölluðu lúxusfríi við Miðjarðarhafið.
Hailey hefur verið dugleg að deila myndum frá ferðalagi þeirra á samfélagsmiðlum, en hjónin hafa notið þess að sleikja sólina á glæsilegri lúxussnekkju, skoðað lífið í borginni og njóta náttúrunnar.
Þá birti Hailey að sjálfsögðu nokkrar sjóðheitar bikinímyndir þar sem hún klæddist vínrauðu og heldur efnislitlu bikiníi úr sundfatalínu Victoria's Secret-fyrirsætunnar Candice Swanepoel, en Hailey er sjálf nýkomin frá Spáni þar sem hún var í tökum fyrir nærfatarisann.
Síðasta ár var strembið fyrir hjónin, en þau voru bæði að glíma við heilsufarsleg vandamál. Justin greindi frá því að hann væri með Ramsay Hunt-sjúkdóminn síðastliðið sumar, en stuttu áður lenti Hailey á spítala eftir að hafa fengið einkenni sem líkjast helst heilablóðfalli.
Eftir miklar rannsóknir kom í ljós að hún var með lítinn blóðtappa við heila sem olli því að súrefnisflæðið minnkaði.
Hjónin virðast því vera meira en tilbúin í sumarið, enda skrifaði hún við eina af myndaröðum sínum: „Það sem ég veit er að ég er að fara að eiga besta sumar lífs míns.“