Tillaga að leyfi Arctic Fish í Ísafjarðardjúpi auglýst

Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Auglýst hefur verið rekstrarleyfi …
Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Auglýst hefur verið rekstrarleyfi vegna laxeldi félagsins í Ísafjarðardjúpi. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Mat­væla­stofn­un og Um­hverf­is­stofn­un hafa aug­lýst til­lög­ur að rekstr­ar- og starfs­leyfi fyr­ir lax­eldi Arctic Fish á þrem­ur staðsetn­ing­um í Ísa­fjarðar­djúpi. Til­lag­an hljóðar upp á 5.200 tonna há­marks­líf­massa af frjó­um laxi, að því er seg­ir í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins. Fé­lagið hef­ur hug á að setja fyrstu út í kví­ar í haust en ann­ars hefst út­setn­ing seiða fyr­ir al­vöru næsta vor.

Leyfi Arctic Fish er annað leyfið til lax­eld­is sem gefið er út í Djúp­inu. Háa­fell, dótt­ur­fé­lag HG á Ísaf­irði, fékk út­gefið leyfi fyr­ir 6.800 tonn­um fyr­ir tveim­ur árum og mun slátra fyrsta lax­in­um í ár. Haf­rann­sókna­stofn­un tel­ur að Ísa­fjarðar­djúp geti borið 30 þúsund tonna fram­leiðslu en að heild­ar­líf­massi af frjó­um laxi megi ekki fara yfir 12 þúsund tonn vegna áhættumats vegna hugs­an­legr­ar blönd­un­ar við laxa­stofna sem fyr­ir eru í ánum.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: