50 þúsund laxar í fyrstu slátrun

Um 110 tonn af slægðum laxi voru seld til viðskiptavina …
Um 110 tonn af slægðum laxi voru seld til viðskiptavina Landeldis á dögunum. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta er stór stund og mik­il­væg­ur áfangi,“ seg­ir Eggert Þór Kristó­fers­son, for­stjóri Land­eld­is hf. en fyrstu slátrun á laxi í land­eld­is­stöð fyr­ir­tæk­is­ins í Þor­láks­höfn er lokið. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kem­ur fram að alls hafi tæp­lega 50 þúsund löx­um verið slátrað. Stærstu lax­arn­ir voru um fimm kíló en meðalþyngd var tæp­lega þrjú kíló. Slátrun, vinnsla, pökk­un og sala gekk sam­kvæmt áætl­un og voru um 110 tonn af slægðum laxi seld og send til viðskipta­vina beggja vegna Atlants­hafs­ins í síðustu viku.

Haft er eft­ir Eggerti í til­kynn­ing­unni að þessi tíma­mót séu afrakst­ur vinnu síðustu fimm ára. „Sú staðreynd að lax­inn hef­ur dafnað afar vel síðastliðið ár í land­eld­is­stöð okk­ar við Þor­láks­höfn og að viðskipta­vin­ir okk­ar gefa afurðinni hæstu ein­kunn sök­um bragðgæða, sýn­ir okk­ur svart á hvítu að sú tækni sem við beit­um í land­eld­is­stöð okk­ar er að sanna sig.“

Ríf­lega 1,75 millj­ón­ir laxa eru nú í seiða- og áframeld­is­stöðvum Land­eld­is. Næsta slátrun er fyr­ir­huguð í ág­úst. „Land­eldi á laxi er í eðli sínu ný­sköp­un­ar­verk­efni og við eig­um enn langt í land í lær­dómskúrf­unni en þessi afar vel heppnaða fyrsta upp­skera og já­kvæð viðbrögð viðskipta­vina staðfesta að við erum á réttri leið. Við höld­um ótrauð áfram upp­bygg­ingu um­hverf­i­s­væns og sjálf­bærs lax­eld­is á landi.“

mbl.is