Gripu til lúsalyfja á Vestfjörðum

Fiskisjúkdómanefnd mælti á síðasta fundi sínum með samþykkt umsókna um …
Fiskisjúkdómanefnd mælti á síðasta fundi sínum með samþykkt umsókna um lyfjameðhöndlun gegn laxalús á tveimur stððum í Arnarfirði og einum í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fiski­sjúk­dóm­a­nefnd samþykkti á síðasta fundi sín­um að mæla með því að eld­islax í sjókví­um á tveim­ur svæðum í Arnar­f­irði og einu svæði í Pat­reks­firði yrði meðhöndlaður með lyfj­um gegn laxal­ús. Ekki hafa verið birt­ar upp­lýs­ing­ar um út­breiðslu laxal­úsa í ís­lensku sjókvía­eldi frá því í des­em­ber 2022.

Í fund­ar­gerð fiski­sjúk­dóm­a­nefnd­ar frá 26. maí síðastliðnum kem­ur fram að nefnd­in hafi mælt með því að samþykkt yrði um­sókn um leyfi til lúsameðhöndl­un­ar á eld­islaxi með lyf­inu Alp­hamax (Delta­met­hrin) í sjókví­um í Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði. Einnig var mælt með beit­ingu lyfs­ins Alp­hamax (Delta­met­hrin) í Hvestu í Arnar­f­irði og var mælt með samþykkt um­sókn­ar um beit­ingu Salmos­an (Aza­met­hip­hos) á Tjalda­nesi, sem er einnig í Arnar­f­irði.

Hafði áður verið tek­in til um­fjöll­un­ar um­sókn um beit­ingu lyfja á Tjalda­nesi en fiski­sjúk­dóm­a­nefnd lagðist gegn samþykkt henn­ar. Þá seg­ir í fund­ar­gerð frá 17. maí: „Að mati nefnd­ar­inn­ar er sjúk­dómsstaða eld­is­fisks á um­ræddu eld­is­svæði ekki þannig vax­in að ástæða sé til lyfjameðhöndl­un­ar að sinni. Nefnd­in legg­ur áherslu á að áfram verði fylgst með fjölda sníkju­dýra á eld­is­svæðinu með viku­leg­um taln­ing­um og gripið verði til viðeig­andi ráðstaf­ana ef svo ber und­ir.“

Ekk­ert birt um lús frá des­em­ber

Tekið var í notk­un mæla­borð fisk­eld­is á vef Mat­væla­stofn­un­ar (MAST) í apríl 2021. Mæla­borðinu var ætlað að geyma all­ar helstu upp­lýs­ing­ar um eldi hér á landi, hvort sem um er að ræða í sjó eða á landi. Mark­miðið var að auka gagn­sæi með því að birta upp­lýs­ing­arn­ar á ein­um stað.

Þessi birt­ing trygg­ir um leið heild­stæðari yf­ir­sýn yfir stöðu og þróun grein­ar­inn­ar, sem er mik­il­vægt fyr­ir alla hlutaðeig­andi,“ var haft eft­ir Kristjáni Þór Júlí­us­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra, við opn­un mæla­borðsins.

Eitt þeirra atriða sem þar hef­ur átt að birta hef­ur verið út­breiðsla laxal­úsa á fisk­um í sjókví­um við Íslands­strend­ur. Hef­ur verið birt meðaltal kven­lúsa á fiski í hverj­um mánuði allt frá janú­ar 2020. Alla jafna hef­ur lús ekki verið tal­in mánuðina fe­brú­ar til apríl þar sem hún á erfitt til upp­drátt­ar í köld­um sjó yfir vetr­ar­mánuðina, en frá des­em­ber 2022 hafa eng­ar upp­lýs­ing­ar um þróun lúsa­smits verið birt­ar í mæla­borðinu.

Mik­il fjölg­un laxal­úsa átti sér stað í Dýraf­irði haustið 2022 en var tal­in inn­an marka þar sem til stóð að slátra þeim fiski sem var að finna í kví­un­um. Í des­em­ber voru tald­ar 9,22 kven­lýs á hverj­um fiski í firðinum, en aldrei hafa verið tald­ar fleiri lýs á fiski í ís­lensku lax­eldi, svo vitað sé.

mbl.is