Herja stökkbreyttar lýs á fiska á Vestfjörðum?

Laxalús lifðu óvænt veturinn af á Vestfjörðum en ekki er …
Laxalús lifðu óvænt veturinn af á Vestfjörðum en ekki er vitað til þess að þær geti lifað í sjó mikið kaldari en 4 gráður. mbl.is/Helgi Bjarnason

Nauðsyn­legt er að rann­saka hvernig laxal­ús gat lifað síðastliðinn vet­ur af og ekki síst fjölgað sér í þeim kalda sjó sem var á eld­is­svæðunum á Vest­fjörðum í vet­ur. Hvergi hef­ur þekkst að laxal­ús geti ráðið við slík­ar aðstæður en óvænt þurfti að grípa til beit­ingu lúsa­lyfja í Arnar­f­irði og Pat­reks­firði und­ir lok síðasta mánaðar.

„Það má segja að það hafi komið okk­ur á óvart að það hafi komið lús í þessu magni á þess­um tíma. Sjór­inn hafði verið óvenju kald­ur í vet­ur og var um tíma bara 0,2 gráður í janú­ar og mars. Svo voru þetta svæði sem höfðu verið meðhöndluð með lyfja­fóðrinu Slice fyr­ir ára­mót,“ seg­ir Karl Stein­ar Óskars­son, deild­ar­stjóri fisk­eld­is hjá Mat­væla­stofn­un.

Lús er venju­lega ekki tal­in yfir vetr­ar­tím­ann þar sem hún er sögð ekki getað lifað í mjög köld­um sjó og alls ekki fjölgað sér. „Það var eitt­hvað um lús þarna í des­em­ber og það að hún hafi lifað þenn­an vet­ur af, þar sem var mjög kalt í sjó og mjög kald­ari í sjó en í mörg ár á und­an, og hafi getað farið að fram­leiða af­kvæmi þegar hit­inn var um fjór­ar gráður er ekki eðli­legt. Sam­kvæmt öll­um þekkt­um vís­ind­um ættu menn ekki að hafa nein­ar áhyggj­ur af þessu. Það þarf að rann­saka þetta miklu bet­ur.“

Ekki er vitað hvað olli því að lús­in lifði vet­ur­inn af. „Það get­ur verið að þetta sé til­fallandi til­felli og erum við þess vegna að vakta stöðuna, en það get­ur líka verið að lús­in sé að þróa aukið kuldaþol. Það eru í sjálfu sér eng­ar rann­sókn­ir í gangi á laxal­ús og það er verk­efni sem heyr­ir ekki und­ir okk­ur,“ seg­ir Karl Stein­ar. Hann seg­ir kanadíska og norska koll­ega sína vart trúa því að þetta hafi átt sér stað.

Lúsin festir sig á fiksi og nærist á honum.
Lús­in fest­ir sig á fiksi og nær­ist á hon­um. Ljós­mynd/​Hav­forskn­ings­instituttet

Bannað að telja í kulda

Fjallað var um það á 200 míl­um í vik­unni að fiski­sjúk­dóm­a­nefnd hafi samþykkt notk­un lúsa­lyfja en ekk­ert hafi verið birt í mæla­borði fisk­eld­is sem gaf til kynna að lús hafi verið í eins mikl­um mæli á svæðinu. Það hafi hins veg­ar verið upp­lýs­ing­ar frá lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um sem fylgdi um­sókn­um þeirra um að beita lyfj­um sem leiddi til ákvörðunar nefnd­ar­inn­ar.

Form­leg vökt­un lúsa­fjölda er hins veg­ar tak­mörk­un­um háð. „Sam­kvæmt reglu­gerð má ekki telja lús þegar sjáv­ar­hiti er fjór­ar gráður eða minni. Með þeim aðferðum sem við not­um þarf að taka fisk upp úr kví­un­um og telja lús. Út af vel­ferðarsjón­ar­miðum er ekki talið þar sem það hef­ur nei­kvæð áhrif á fisk­inn að taka hann upp úr svona köld­um sjó.“

Karl Stein­ar seg­ir gild­andi reglu­gerð gera ráð fyr­ir að upp­lýs­ing­ar um lús ber­ist Mat­væla­stofn­un einu sinni í mánuði. „Þá í síðasta lagi fimmtánda næsta mánaðar. Þannig að töl­urn­ar fyr­ir maí, sem við erum að vinna með, þær koma form­lega í síðasta lagi til okk­ar 15. júní og birt­ast í mæla­borði fisk­eld­is und­ir lok júní. Við vilj­um eiga sam­tal við grein­ina um tíðari upp­lýs­inga­gjöf, sér­stak­lega um lús, og við vilj­um að í reglu­gerðarbreyt­ing­um sem nú er unnið að verði einnig inn­leidd skil á upp­lýs­ing­um oft­ar en einu sinni í mánuði.“

Tæki­færi með nýj­um tækj­um

Ekki er tek­in ákvörðun um beit­ingu lyfja af léttúð að sögn Karls Stein­ars. „Við höf­um skoðað reynslu Norðmanna af lyfj­um og því stigið mjög var­lega til jarðar þegar kem­ur að notk­un þeirra hér á landi. Við heim­iluðum þetta því þetta er viðkvæm­ur tími, meðal ann­ars göngu­tími seiða.“

Hann seg­ir full mögu­legt að skoða frek­ari lúsa­taln­ingu en fram­kvæmt hef­ur verið hingað til án þess að valda of mik­illi rösk­un fyr­ir fisk­inn. Hafn­ar séu próf­an­ir á Vest­fjörðum með svo­kölluðu Optoscale-tæki sem tel­ur lús­ina neðan­sjáv­ar. „Þetta er sjálf­virk­ur bún­ar sem menn eru rétt byrjaðir að prófa sig áfram með.“

Laxeldi hefur farið vaxandi hér á landi.
Lax­eldi hef­ur farið vax­andi hér á landi. mbl.is/​Helgi Bjarna­son
mbl.is