Hrygningarstofn þorsks minnkar lítillega

Netarall Hafrannsóknastofnunar fór fram 28. mars til 22. apríl.
Netarall Hafrannsóknastofnunar fór fram 28. mars til 22. apríl. Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir

„Stofn­vísi­tala hrygn­ing­arþorsks við Ísland er há í ár eins og hún hef­ur verðið síðastliðin 13 ár, en er held­ur lægri en í fyrra,“ seg­ir í skýrslu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar vegna stofn­mæl­ingu hrygn­ing­arþorsks með þorska­net­um (net­arall) sem fram fór 28. mars til 22. apríl.

Í skýrsl­unni, sem birt hef­ur verið á vef stofn­un­ar­inn­ar, seg­ir að lækk­un­ina megi að mestu rekja til þess að minna fékkst í Fjör­unni sem er svæðið meðfram strand­lengj­unni frá Grinda­vík í vestri til Dyr­hóla­eyj­ar í austri. Einnig hafi feng­ist minna á Sel­vogs­banka sem eru fiski­miðin vest­ur af Vest­manna­eyj­um og suður af Þor­láks­höfn.

Álgeng­ast­ur var þorsk­ur sjö til níu ára og var mest af átta ára þorski. „Ástand þorsks er um eða und­ir meðaltali tíma­bils­ins 1996-2023. Tals­verður breyti­leiki er þó á ástandi á milli svæða, ald­urs­hópa og lengd­ar­flokka. Veru­leg­ar breyt­ing­ar hafa orðið á meðalþyngd þorsks eft­ir aldri á rann­sókn­ar­tím­an­um. Meðalþyngd fór að hækka árið 2010 við vest­an­vert landið og við Norður­land, en hef­ur lækkað aft­ur síðustu ár. Meðalþyngd þorsks eft­ir aldri við Suðaust­ur­land var há í upp­hafi rann­sókn­ar­tím­ans, fór síðan lækk­andi en hef­ur hækkað aft­ur. Kynþroska­hlut­fall eft­ir aldri breyt­ist lítið hjá al­geng­ustu ald­urs­hóp­um milli ára.“

Aldrei heærri í skar­kola og skráp­flúru

Þá seg­ir að stofn­vísi­tala ufsa í net­aralli hafi verið há flest ár frá ár­inu 2016 og er svipuð í ár ef und­an­skilið er árið 2019 þegar vísi­tal­an náði há­marki. Til­tölu­lega litl­ar breyt­ing­ar eru á stofn­vísi­tölu ufsa milli ára, en hún hækk­ar aðeins í Faxa­flóa, Fjör­unni og við Suðaust­ur­land.

Vísi­tala ýsu hef­ur verið há síðustu sjö ár. Vísi­töl­ur löngu,keilu og stein­bíts eru hærri en und­an­far­in ár. Vísi­töl­ur skar­kola og skráp­flúru eru þær hæstu frá upp­hafi en vísi­tala hrogn­kels­is lækk­ar áfram frá há­marki árið 2021.

mbl.is