Virkir samfélagsmiðlanotendur hafa eflaust rekist á myndir af sænska áhrifavaldinum Hönnu Schönberg, en hún er dugleg að deila töfrandi tísku- og ferðatengdu efni á miðlum sínum. Schönberg er þekkt fyrir að vera með afar fallegt og þykkt ár og er lunkin við að gera fallegar greiðslur í hárið.
Á dögunum deildi Schönberg kennslumyndbandi þar sem hún sýnir hina fullkomnu 90's-hárgreiðslu í aðeins fimm skrefum. Greiðslan er í senn tímalaus og glæsileg, en undanfarið hefur 90's tískan tröllriðið tískuheiminum.
Glæsileg 90's-greiðsla í fimm skrefum
- Schönberg byrjar á því að bera hitavörn í rakt hárið. Hún notar hitavörn sem ver hárið fyrir allt að 230 gráðu hita og gefur hárinu einnig lyftingu.
- Því næst spreyjar hún lyftingarspreyi í rót hársins fyrir enn meiri lyftingu – en góð lyfting spilar lykilhlutverk í 90's greiðslum.
- Að því loknu þurrkar hún hárið með hárblásara.
- Þegar hárið er orðið þurrt krullar hún það og setur hverja krullu í rúllu. Þegar allt hárið hefur verið sett í rúllur lætur hún þær standa í að minnsta kosti 30 mínútur.
- Að lokum tekur hún krullurnar varlega úr rúllunum og spreyjar léttu hárspreyi yfir til að halda krullunum á sínum stað.