Háafell tekur í notkun annað kvíaból í Djúpinu

Laxinn dafnar vel í kvíum Háafells í Ísafjarðardjúpi. Annar árgangur …
Laxinn dafnar vel í kvíum Háafells í Ísafjarðardjúpi. Annar árgangur laxaseiða var settur út í kvíar í vor. Sjóflokkurinn frá Súðavík hugar að búnaði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lax sem Háa­fell elur í Ísa­fjarðar­djúpi dafn­ar afar vel. Fisk­ur­inn var sett­ur út í kví­ar í Vigurál á síðasta ári og hefst slátrun í haust. Í vor var annað kvía­bólið tekið í notk­un, Kof­ra­dýpi.

Háa­fell stend­ur í mikl­um fjár­fest­ing­um við upp­bygg­ingu mann­virkja og tækja­búnaðar vegna eld­is­ins, auk líf­mass­ans. Fram­kvæmd­ir eru hafn­ar við stækk­un seiðastöðvar­inn­ar á Nauteyri og nýr fóðurprammi og vinnu­bát­ur til að nota á Kof­ra­dýpi koma í sum­ar, seg­ir í um­fjöll­un Morg­un­blaðsins.

Háa­fell er dótt­ur­fé­lag sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins HG á Ísaf­irði sem stundað hef­ur fisk­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi í 22 ár. Al­inn var þorsk­ur og regn­bogasil­ung­ur þar til fyr­ir­tækið fékk fyrsta lax­eld­is­leyfið í Djúp­inu, 6.800 tonn, og hóf lax­eldi vorið 2022. Annað leyfi hef­ur verið aug­lýst, 5.200 tonn, til Arctic Fish, og stend­ur til að setja út fyrstu seiðin þar í haust.

Falur Þorkelsson skipstjóri og Gauti Geirsson framkvæmdastjóri.
Falur Þorkels­son skip­stjóri og Gauti Geirs­son fram­kvæmda­stjóri. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells, seg­ir að eldið í Viguráli hafi gengið af­skap­lega vel. Fisk­ur­inn hafi vaxið vel og af­föll verið afar lág. Spurður um skýr­ing­ar seg­ir Gauti að starfs­fólk Háa­fells búi að langri reynslu af fisk­eldi í Djúp­inu. Hann nefn­ir að vandað hafi verið val á staðsetn­ing­um, góð seiði séu notuð og fisk­in­um sinnt vel. Seg­ir Gauti að bú­ast megi við því að eitt­hvað komi upp á í eld­inu en starfs­fólk Háa­fells vilji vera við öllu búið og geta brugðist hratt við.

Ítar­lega er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: