Stjórn Íslandsbanka sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld um að hún hygðist boða til hluthafafundar þar sem stjórn og stjórnendur munu fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5% eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka sem fram fór hinn 22. mars 2022.
Sagði í yfirlýsingunni að ákvörðunin sé tekin í kjölfar tilkynningar Bankasýslu ríkisins í dag þar sem óskað var eftir slíkum fundi.
„Bankinn og stjórnendur harma mjög þau brot sem fram koma í sáttinni. Á hluthafafundinum verður farið ítarlega yfir málsatvik og þær úrbætur og breytingar sem þegar hafa verið gerðar eða eru í vinnslu,“ segir í yfirlýsingunni, en boðað verður til fundarins á næstu dögum.