Þriðja stóra landeldisstöðin

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyr­ir­tækið Thor land­eldi ehf. hef­ur lagt fram til kynn­ing­ar matsáætl­un vegna bygg­ing­ar fisk­eld­is­stöðvar vest­an við Þor­láks­höfn þar sem ætl­un­in er að ala lax og ef til vill sil­ung í ker­um á landi.

Miðað er við 20 þúsund tonna fram­leiðslu á ári í full­byggðri stöð ásamt seiðastöð og þjón­ustu­bygg­ing­um. Er þetta þriðja stóra land­eld­is­verk­efnið á þessu svæði en auk þess eru þrjár stór­ar seiðastöðvar í ná­grenn­inu. Áformuð heild­ar­fram­leiðsla í land­eld­inu er 76.500 tonn á ári.

Kort/​mbl.is

Lóðin sem Thor land­eldi ehf. hef­ur fengið hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi er 2,5 kíló­metr­um vest­an við Þor­láks­höfn. Þar stóð áður fisk­eld­is­stöðin Fjör­fisk­ur. Í for­svari fyr­ir fyr­ir­tækið eru reynd­ir fisk­eld­is­menn, Jónatan Þórðar­son og Þórður Þórðar­son, og mynda þeir verk­efn­is­stjórn fyr­ir um­hverf­is­mats­ferlið ásamt fleir­um og ráðgjöf­um frá Eflu.

Gert er ráð fyr­ir að stöðin verði byggð upp í þrem­ur áföng­um. 

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: