Landsvirkjun flýr myglu og flytur í Katrínartún

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, flytur út úr skrifstofu sinni á …
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, flytur út úr skrifstofu sinni á 8. hæð á Háaleitisbraut, sem hann hefur haft í fjórtán ár. Ljósmynd/Aðsend

Landsvirkjun hefur flutt höfuðstöðvar sínar tímabundið í Katrínartún 2 í Reykjavík.

Í fyrrahaust fannst mygla í húsnæði Landsvirkjunar á Háaleitisbraut 68. Við frekari rannsóknir kom í ljós að umfangið var töluvert og því hefur starfsfólk Landsvirkjunar verið dreift um skrifstofuhúsnæði í borginni undanfarna mánuði og verður í sumum tilfellum þar áfram fram á komandi vetur, að því er Landsvirkjun greinir frá í tilkynningu. 

Þá segir, að húsnæðinu á Háaleitisbraut 68 verði lokað frá og með 1. júlí.  Móttaka gesta og öll önnur starfsemi Landsvirkjunar á höfuðborgarsvæðinu mun að endingu sameinast í Katrínartúni næstkomandi vetur, en fyrsti hópurinn er þegar fluttur yfir.

„Starfsfólk Landsvirkjunar kveður Háaleitisbrautina með söknuði að sinni, en þar hefur fyrirtækið átt höfuðstöðvar sínar í nærri hálfa öld. Til skoðunar er annaðhvort að gera endurbætur á húsnæðinu eða að flytja starfsemina á höfuðborgarsvæðinu í nýtt húsnæði,“ segir í tilkynningunni. 

„Það er mikils virði að tímabundin lausn hafi fundist á húsnæðismálum Landsvirkjunar,“ er haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar. 

„En nú þarf einfaldlega að meta hvort borgi sig að gera endurbætur á gamla húsnæðinu eða hvort finna þurfi nýtt framtíðarhúsnæði fyrir fyrirtækið,“ segir hann jafnframt. 

mbl.is