„Ástin er eitthvað sem allar manneskjur bæði þurfa og þrá“

Brynja Sif Skúladóttir er formaður hins nýstofnaða Ástarsögufélags. Hún segir að það sé ekki nógu mikið um erótík, platónskt sambönd, ástarsorgir og sigra í íslenskum bókum og því ætlar félagði að bæta úr því. Fyrsta afurðin lítur dagsins ljós fyrir jólin en á meðal stofnfélaga er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. 

„Hugmyndin að stofnun Ástarsögufélagsins vaknaði við umræðu innan ritlistarinnar og á meðal nokkurra rithöfunda um hvað það væri lítið um útgáfu og umræðu á bókmenntum um ástina, þó að víða megi finna hana sem drífandi undirliggjandi kraft. Við finnum að lesendur þrá að lesa bækur, nóvellur, prósa og ljóð um ástina. Í stuttu máli sagt var Ástarsögufélagið stofnað vegna bæði innri og ytri þarfar fyrir meiri ást í ræðu og riti,“ segir Brynja Sif í samtali við Smartland. 

Mega landsmenn eiga von á því að höfundar fari að skrifa ástarsögur í löngum röðum núna?

„Já, það er markmiðið að setja athyglina á vandaða texta um ástina sem hrífa lesandann með sér. Allt frá ástarbréfum til gjörninga og viðburða sem fá hjartað til að slá hraðar,“ segir hún. 

Hvað er það við ástarsögur sem er svona heillandi?

„Ástin er eitthvað sem allar manneskjur bæði þurfa og þrá. Hún getur lyft okkur hærra en okkar eigið ímyndunarafl sér fyrir og einnig dregið fram það myrkasta í mannlegu eðli. Ástin býður upp á allt litróf tilfinninga sem tungumálið getur tjáð og meira til. Manneskjunni líður vel þegar hún setur athyglina á það sem stendur hjarta hennar næst. Að lesa vel skrifaða spennandi texta tileinkaðan ástinni sigrar tímann, við gleymum okkur og leggjum bókina frá okkur með ánægju andvarpi sem fylgir okkur út í lífið.“

Eruð þið í samvinnu við einhver bókaforlög eða mun Ástarsögufélagið gefa út sjálf?

„Ástarsögufélagið mun gefa út sjálft til þess að halda óheftu frelsi sínu og frumleika.“

Hver verður fyrsta bókin sem verður gefin út?

„Fyrsta bókin mun koma út fyrir næstu jól og mun hún innihalda örsögur og smásögur drifnar áfram af ást. Í þessari fyrstu bók verða sögur eftir alla þá færu penna sem stóðu að stofnun Ástarsögufélagsins,“ segir Brynja. 

Stofnfélagar í Ástarsögufélaginu eru eftirfarandi: 

  • Anton Sturla Antonsson
  • Árni Árnason
  • Ásdís Káradóttir
  • Axel Jansson
  • Berglind Erna Tryggvadóttir
  • Bergþóra Björnsdóttir
  • Birna Hjaltadóttir
  • Birna Stefánsdóttir
  • Brynhildur Yrsa Valkyrja
  • Brynja Sif Skúladóttir
  • Daníel Daníelsson
  • Elísabet Kristjánsdóttir
  • Guðrún Friðriks
  • Halldór Magnússon
  • Harpa Dís Hákonardóttir
  • Heiða Vigdís Sigfúsdóttir
  • Hrönn Blöndal
  • Jóna Valborg Árnadóttir
  • Jónína Óskarsdóttir
  • Katrín Jakobsdóttir
  • Katrín Theódórsdóttir
  • Kristín Arngrímsdóttir
  • Margrét Sigríður Eymundardóttir
  • María Hrönn Gunnarsdóttir
  • Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
  • Ragnhildur Guðmundsdóttir
  • Rannveig Lydia Benediktsdóttir
  • Rúnar Helgi Vignisson
  • Sigrún Björnsdóttir
  • Sölvi Halldórsson
  • Stefán Hrafn Stefánsson
  • Valgerður Ólafsdóttir
  • Þórhildur Sveinsdóttir
  • Þórunn Rakel Gylfadóttir
  • Ösp Eldjárn
mbl.is