Losun Zuiderdam innan marka

Skoðunin leiddi í ljós að útblástur mengungarefna var innan leyfilegra …
Skoðunin leiddi í ljós að útblástur mengungarefna var innan leyfilegra marka mbl.is/Kristófer Liljar

At­hug­un um­hverf­is­stofn­un­ar á los­un hol­lenska skemmti­ferðaskips­ins Zui­der­dam leiddi í ljós að los­un skips­ins var inna leyfi­legra marka.

Um­hvef­is­stofn­un fór í eft­ir­lits­ferð um borð í skipið um helg­ina eft­ir að bláa gufu lagði frá skip­inu klukku­stund­um sam­an þegar það var við bryggju við Ak­ur­eyr­ar­höfn í síðustu viku.

Skoðunin leiddi í ljós að út­blást­ur meng­ung­ar­efna var inn­an leyfi­legra marka, en bil­un í hreinsi­búnaði olli strókn­um, að því er fram kem­ur á vef Rúv

Þor­steinn Jó­hanns­son, sér­fræðing­ur í loft­meng­un hjá Um­hverf­is­stofn­un, sagði við mbl.is í síðustu viku að stærri skip væru gjarn­an með svo­kölluð „scrubber“, hreinsi­kerfi sem fyrst og fremst eru notuð til þess að hreinsa brenni­stein, en hjálp­ar til við að hreinsa önn­ur meng­un­ar­efni. Það veld­ur því gjarn­an að vatns­guf­an er meiri en vant er.“

mbl.is