Hér er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar

Enn og aftur er besta útileguveðrið á Suðurlandinu.
Enn og aftur er besta útileguveðrið á Suðurlandinu. Samsett mynd

Nú er komið að helgi og því um að gera að skoða hvar besta veðrið er að finna. Sam­kvæmt tjald­vef Bliku verður besta veðrið á eft­ir­töld­um tjaldsvæðum.

Tjaldsvæðið Árnesi

Við Árnes er von á góðu sum­ar­veðri yfir helg­ina. Bú­ist er við 16 gráða hita á föstu­dag og 17 gráðum á laug­ar­dag. Hins veg­ar er spáð allt að 19 gráðum á sunnu­dag. Bú­ist er við að hálf­skýjað verði um helg­ina og eru eng­ir rign­ing­ar­drop­ar í kort­un­um.

Tjaldsvæðið, sem stend­ur við mynni Þjórsár­dals, er stutt frá ýms­um nátt­úruperl­um og sögu­fræg­um stöðum og því um að gera að nýta helg­ina í að skoða sig um. Á svæðinu er aðgengi að köldu og heitu vatni, raf­magni, gjald­frjálsri sturtu og þvotta­vél. Hund­ar eru leyfðir á svæðinu.

Veitinga- og kaffistofan í Árnesi.
Veit­inga- og kaffi­stof­an í Árnesi. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Tjald­miðstöðin Flúðum

Á Flúðum er von á góðu sum­ar­veðri yfir helg­ina. Spáð er 16 gráðum á föstu­dag, 17 gráðum á laug­ar­dag og 18 gráðum á sunnu­dag. Á föstu­dag er von á að al­skýjað verði, en sól­in brýst fram úr skýj­un­um að ein­hverju leyti á laug­ar­dag og sunnu­dag.

Tjaldsvæðið á Flúðum er rúm­gott og fjöl­skyldu­vænt svæði við bakka Litlu-Laxár. Á tjaldsvæðinu er aðgang­ur að heitu og köldu vatni, raf­magni og gjald­frjálsri sturtu. Einnig er hér þvotta­vél til af­nota, þráðlaust net og hund­ar eru leyfðir á tjaldsvæðinu.

Flúðir.
Flúðir. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Tjaldsvæðið Skjól

Bú­ist er við nokkuð góðu sum­ar­veðri á tjaldsvæðinu. Spáð er 16 gráðum á föstudag og 17 gráðum á laug­ar­dag og sunnu­dag. Á föstu­dag er von á að al­skýjað verði, en sól­in brýst fram úr skýj­un­um að ein­hverju leyti á laug­ar­dag og sunnu­dag.

Tjaldsvæðið, sem er á milli Gull­foss og Geys­is, er stórt og skjól­sælt. Á svæðinu er aðgengi að köldu og heitu vatni, raf­magni og gjald­skyldri sturtu. Hund­ar eru leyfðir á svæðinu. Á Skjóli er veit­inga­hús og bar og stutt er í ýmsa afþrey­ingu og þjón­ustu.

Skjól.
Skjól. Ljós­mynd/​Skjolcamp­ing.com

Tjaldsvæðið Laug­ar­vatni

Bú­ist er við góðu sum­ar­veðri á Laug­ar­vatni. Spáð er 16 gráðum á föstudag, 17 gráðum á laug­ar­dag og 18 á sunnu­dag. Von er á að hálf­skýjað verði alla helg­ina.

Tjaldsvæðið á Laug­ar­vatni er skjól­sælt og rúm­gott. Gott leik­svæði er fyr­ir börn og einnig er þar fót­bolta­völl­ur. Aðgengi er að köldu og heitu vatni, raf­magni, gjald­frjálsri sturtu og eru hund­ar leyfðir á svæðinu. Ald­urstak­mark er 20 ár og er mikið lagt upp úr því að gest­ir geti sofið rótt á næt­urn­ar.

Laugarvatn.
Laug­ar­vatn. mbl.is/​Sig­urður Bogi
mbl.is