Það væsir sannarlega ekki um tónlistarmanninn Bubba Morthens þessa dagana, en hann er staddur í sólríku fríi og hefur verið duglegur að birta myndir frá því á samfélagsmiðlum að undanförnu.
Af myndum að dæma virðist Bubbi vera hæstánægður með að vera kominn í sól og hita, en hann hefur meðal annars notið þess að vera á ströndinni undir heiðskírum himni og leyft sólinni að sleikja sig.