Gagnrýna tillögur gegn stroki úr kvíum

Gullkista Mikið laxeldi er í Arnarfirði og við þann fjörð …
Gullkista Mikið laxeldi er í Arnarfirði og við þann fjörð er stór hluti starfsemi Arnarlax, stærsta laxeldisfyrirtækis landsins. mbl.is/Ágúst Ingi Jónsson

Arn­ar­lax tel­ur starfs­hóp um strok úr sjókvía­eldi hafa í skýrslu sinni lagt fram til­lög­ur án þess að í skýrsl­unni liggi fyr­ir í öll­um til­vik­um skil­greind viðmið á þeim kröf­um sem eru gerðar, að sum­ar til­lög­urn­ar kalli á veru­lega aukið skri­fræði, auk­inn kostnað og hafi jafn­framt óljós­an ávinn­ing, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu.

Í skýrsl­unni, sem birt var í sam­ráðsgátt 22. júní, eru kynnt­ar 25 til­lög­ur til úr­bóta á eft­ir­liti með og aðgerðum til að draga úr stroki eld­is­fiska. Aðeins fimm um­sagn­ir bár­ust í sam­ráðsgátt stjórn­valda, en frest­ur rann út 24. júlí síðastliðinn. Af um­sögn­um sem bár­ust var aðeins ein frá þeim sem stunda fisk­eldi, nán­ar til­tekið frá Arn­ar­laxi.

Arn­ar­lax ger­ir ekki at­huga­semd­ir við all­ar til­lög­urn­ar en bend­ir meðal ann­ars á að til­laga um af­hend­ingu viku­legra fram­leiðslu­skýrslna til Mat­væla­stofn­un­ar hafi óljós­an til­gang, nú skila fyr­ir­tæk­in slík­um skýrsl­um mánaðarlega. „Rök­styðja þarf kröfu um viku­leg skil bet­ur og upp­lýsa hvaða ávinn­ing­ur er með viku­leg­um skil­um en til­lag­an er kostnaðar­söm þar sem hún eyk­ur um­sýslu hins op­in­bera og rekstr­araðila um­tals­vert,“ seg­ir í um­sögn fyr­ir­tæk­is­ins.

Um­fjöll­un­ina má lesa í Morg­un­blaðinu í dag, fimmtu­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina