Jónas nýr sviðsstjóri hjá Hafró

Jónas Páll Jónasson er nýr sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar
Jónas Páll Jónasson er nýr sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar mbl.is/Hákon

Jón­as Páll Jónas­son hef­ur tekið við starfi sviðsstjóra botnsjáv­ar­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Hann hef­ur starfað á botnsjáv­ar­sviði Haf­rann­sókna­stofn­un­ar frá ár­inu 2011, að því er fram kem­ur á vef stofn­un­ar­inn­ar.

Jón­as hef­ur borið ábyrgð á og sinnt rann­sókn­um og stofn­mati fyr­ir hum­ar, hörpudisk og sæ­bjúgu. Jafn­framt hef­ur Jón­as tekið að sér ráðgjöf og rann­sókna­vinnu fyr­ir aðra hrygg­leys­ingja ásamt rann­sókn­um á bol­fisk­um.

Auk þess hef­ur Jón­as haft um­sjón með og kenn­ir á stofn­mats­línu sjáv­ar­út­vegs­skóla GRÓ-FTP sem hef­ur aðset­ur á Haf­rann­sókna­stofn­un.

Jón­as tek­ur við af Guðbjörgu Ástu Ólafs­dótt­ur en hún tók við af Guðmundi Þórðar­syni á síðasta ári.

Stór verk­efni

Botnsjáv­ar­svið sinn­ir vökt­un og rann­sókn­um á botn­læg­um teg­und­um, allt frá helstu nytja­teg­und Íslend­inga, þorsk­in­um, til viðkvæmra og flók­inna búsvæða.

„Við erum búin að vera í varn­ar­bar­áttu nokkuð lengi. Bæði hvað varðar al­menn­ar rann­sókn­ir og einnig vökt­un margra minni stofna. Á sama tíma hafa kröf­ur sam­fé­lags­ins og áhugi á vannýtt­um stofn­um auk­ist. Stór verk­efni bíða sviðsins við skipu­lagn­ingu nýt­ing­ar við Íslands, eins og áhersl­ur stjórn­valda um friðun 30% hafsvæða fyr­ir árið 2030. Þessi verk­efni passa vel inn­an þess ramma sem Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur verið að sinna, eft­ir bestu getu,“ er haft eft­ir Jónasi.

„Von­andi get­um við eflt starf­sem­ina á þess­um sviðum, bæði með auknu fjár­magni og styrkja­fé,“ seg­ir hann.

Upp­fært klukk­an 10:09: Upp­haf­lega sagði að Jón­as hafi tekið við af Guðmundi Þórðar­syni en rétt er að hann tek­ur við af Guðbjörgu Ástu Ólafs­dótt­ur. Frétt­in hef­ur verið leiðrétt með til­liti til þessa.

mbl.is