Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF á Íslandi) telja tillögur starfshóps um strok úr sjókvialedi framför í regluverki greinarinnar en „að langflestar þeirra muni á engan hátt koma í veg fyrir strok og þar af leiðandi ekki vernda villta laxastofna og vistkerfi.“
Í Morgunblaðinu í dag er fjallað um umsagnir um tillögur starfshópsins sem birtar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.
Þá segir einnig í umsögn NASF: „Það er vitað mál að sjókvíaeldi hefur gríðarlega neikvæð áhrif á [villtu] stofnana, en á Íslandi er enn hægt að koma í veg fyrir það. Að leyfa sjókvíaeldi á Íslandi og sérstaklega að auka við það er hrein aðför að villtum laxi,“ segir meðal annars í umsögn samtakanna og „að ekki hefur enn tekist í heiminum að koma í veg fyrir strok og annan umhverfisskaða sjókvíaeldis“.