Sorpa vinnur að útboði á umhirðu grenndarstöðva á höfuðborgarsvæðinu fyrir plast, pappa, málma og gler. Umhirða grenndarstöðva hefur vakið athygli að undanförnu, en margir íbúar hafa kvartað yfir fullum gámum. Áform eru um að útbúa gámana skynjurum sem tilkynna þegar gámar eru fullir.
Samkvæmt tilkynningu Sorpu á að fjölga grenndarstöðvum og bæta við gámum fyrir málma og gler, sem nú skal flokka sérstaklega frá öðrum úrgangi. Einnig á að tryggja að yfirfallsstöðvar fyrir plast og pappa séu fyrir hendi í öllum hverfum til að mæta auknu álagi.
Þess að auki verður tryggt að gámar fyrir textíl og skilagjaldsskyldar umbúðir séu til staðar á flestum grenndarstöðvum, í samræmi við ný hringrásarlög
Gerð verður sú krafa að nýir gámar verði útbúnir sérstökum skynjurum sem geta mælt og tilkynnt, með skilvirkum hætti, hvenær gámur er fullur og tími til kominn að tæma hann. Þetta innbyggða eftirlitskerfi á að tryggja tímabæra losun og almennt hreinlæti.
Útboðið fer í auglýsingu á morgun, föstudaginn 28. júlí og tilboð verða opnuð í lok ágúst. Allir sem áhuga hafa á að kynna sér tilboðið er bent á utbodsvefur.is.