„Ég lít á þetta sem átaksverkefni,“ sagði Linda Jónsdóttir, nýkjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka, í samtali við mbl.is eftir hluthafafund bankans sem fram fór í gær.
Linda er sem kunnugt er framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel og því fyrir í krefjandi starfi hjá alþjóðlegu fyrirtæki.
Enginn af viðmælendum Morgunblaðsins á hluthafafundinum í gær hafði efasemdir um getu og hæfileika Lindu til að sinna hlutverki stjórnarformanns Íslandsbanka. Aftur á móti voru margir hugsi yfir því hvernig það fer saman við starf hennar hjá Marel, þá í ljósi þess að rekstur Marels hefur gengið erfiðlega sl. tvö ár og vitað er að starf stjórnarformanns í Íslandsbanka er tímafrekt starf.
Það endurspeglaðist að hluta til í niðurstöðu kosninga til stjórnar, þar sem Linda hlaut næstfæst þeirra atkvæða sem skiluðu stjórnarsæti, um 7% greiddra atkvæða á fundinum.
Nánar er fjallað um hluthafafundinn og nýja stjórn í Morgunblaðinu í dag.