Goldman Sachs kaupir þjónustuaðila Arctic Fish

Brunnbáturinn Novatrans kom til Íslands í júní og mun hann …
Brunnbáturinn Novatrans kom til Íslands í júní og mun hann koma lax úr kvíum Arctic Fish í sláturhúsið á Bolungarvík. Ljósmynd/Frøy

Sam­keppn­is­yf­ir­völd í Nor­egi og Úkraínu hafa samþykkt kaup Goldm­an Sachs As­set Mana­gement á 72,11% hlut í norska skipa­fé­lag­inu Frøy sem sér­hæf­ir sig í þjón­ustu við fisk­eldi. Frøy hef­ur verið í eigu SalM­ar og er kaup­verð sagt 6,6 millj­arðar norskra króna sem er jafn­v­irði rúm­lega 85 millj­arða ís­lenskra króna, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu.

SalM­ar er fyrr­ver­andi eig­andi Arctic Fish en nú­ver­andi eig­andi Arn­ar­lax.

Frøy áform­ar frek­ari vöxt hér á landi á kom­andi árum, en nú þegar eru tveir brunn­bát­ar þeirra starf­andi á Íslandi og þjón­usta þeir fisk­eldi Arctic Fish á Vest­fjörðum.

„Ísland er spenn­andi markaður sem við fylgj­umst vel með. Samn­ing­ur­inn sem við höf­um við Arctic Fish er að við mun­um vaxa sam­an með þeim. Novatrans er á þriggja ára samn­ingi þar sem við get­um boðið stærri bát ef þörf kref­ur,“ seg­ir Andreas Moe, yf­ir­maður brunn­báta hjá Frøy.

Nán­ar er fjallað um málið í Morg­un­blaðinu í dag, fimmtu­dag.

Upp­fært 04.08.23 klukk­an 08:30. Upp­haf­lega stóð að SalM­ar sé eig­andi Arctic Fish, en rétt er að norska fé­lagið seldi öðru norsku fé­lagi (Mowi) Arctic Fish eft­ir að krafa þess efn­is var gerð af Sam­keppnis­eft­ir­lit­inu við samruna norskra fé­laga sem fóru með meiri­hluta í Arn­ar­laxi og Arctic Fish. Frétt­in hef­ur verið leiðrétt með til­liti til þessa.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: