Söngkona Blackpink fann ástina í örmum leikara

Ahn Bo-Hyun og Jisoo hafa opinberað samband sitt.
Ahn Bo-Hyun og Jisoo hafa opinberað samband sitt. Samsett mynd

Suður-kóresku stórstjörnurnar Jisoo og Ahn Bo-Hyun hafa formlega opinberað samband sitt þrátt fyrir að slíkt tíðkist ekki í Suður-Kóreu. Umboðsaðilar parsins gáfu frá sér yfirlýsingu og staðfestu ánægjutíðindin. 

Bo-Huyn og Jisoo sáust saman nýverið og samkvæmt yfirlýsingunni þá er sambandið á byrjunarstigi og er parið mjög hrifið af hvort öðru.

Bo-Hyun, 35 ára, er kóreskur leikari og þekktastur fyrir hlutverk sín í Itaewon Class og Descendants of the Sun. Jisoo, 28 ára, er ein af fjórum liðsmönnum K-poppsveitinnar Blackpink, ásamt þeim Jennie, Lisu og Rosé. Stúlknasveitin er afar vinsæl og á tónleikaferðalagi um heiminn um þessar mundir. 

mbl.is