Sjö umsóknir um sjókvíaeldi bíða afgreiðslu

Sjö ný rekstrarleyfi um sjókvíeldi bíða afgreiðslu Matvælastofnunar. Einnig liggja …
Sjö ný rekstrarleyfi um sjókvíeldi bíða afgreiðslu Matvælastofnunar. Einnig liggja fyrir stofnunninni átta umsóknir um breytt leyfi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sjö um­sókn­ir um ný rekstr­ar­leyfi fyr­ir sjókvía­eldi eru til meðferðar hjá Mat­væla­stofn­un. Þar af þrjár um­sókn­ir vegna áforma um sjókvía­eldi á Aust­fjörðum og fjór­ar á Vest­fjörðum. Um­sókn­irn­ar eru mis­langt komn­ar.

Þetta kem­ur fram í um­fjöll­un Viðskipta­blaðsins.

Til­laga að nýju rekstr­ar­leyfi Arctic Fish vegna 5.200 tonna lax­eldi í Ísa­fjarðar­djúpi var aug­lýst í júní, en önn­ur um­sókn vegna eld­is í Ísa­fjarðar­djúpi á eft­ir að fara í gegn­um áhættumat vegna sigl­inga­ör­ygg­is og á það einnig við um eina um­sókn vegna eld­is í Seyðis­firði.

Óvissa um af­greiðslu um­sókna

Ekki er víst að all­ar þess­ar sjö um­sókn­ir fá­ist af­greidd­ar á grund­velli gild­andi laga þar sem laga­breyt­inga er að vænta.

í svari við fyr­ir­spurn Viðskipta­blaðsins seg­ir deild­ar­stjóri fisk­eld­is­deild­ar Mat­væla­stofn­un­ar stofn­un­ina „skoða hvort fjór­ar af þess­um sjö um­sókn­um um ný rekstr­ar­leyfi til sjókvía­eld­is falli utan skurðarpunkts lag­anna 19. júlí 2019 eða ekki. Falli þær utan skurðpunkts verður þeim um­sókn­um hafnað. Ef ein­hver um­sókn eru hins veg­ar inn­an skurðpunkts þá verður sú um­sókn af­greidd“.

Þá hef­ur Mat­væla­stofn­un átta um­sókn­ir til meðferðar er snúa að breyt­ingu á gild­andi rekstr­ar­leyf­um og er af­greiðsla þeirra einnig sögð háð áhættumati sigl­inga­ör­ygg­is. Aðeins er til slíkt mat fyr­ir þrjú eld­is­svæði Arctic Fish í Ísa­fjarðar­djúpi og er ekki vitað hvenær verður lokið við gerð áhættumats annarra eld­is­svæða.

mbl.is