Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner varð nýlega 26 ára gömul og fagnaði tímamótunum í glæsilegu lúxusfríi í Perugia á Ítalíu ásamt vinum sínum og fjölskyldu.
Jenner eyddi afmælisdeginum í Los Angeles hinn 10. ágúst síðastliðinn, en í vikunni á eftir var hún mætt til Perugia á einkaþotu ásamt dóttur sinni Stormi, móður sinni Kris Jenner, systur sinni Khloé Kardashian og dóttur hennar, True.
Kardashian-Jenner-fjölskyldan er sannarlega ekki þekkt fyrir lágstemmda afmælisfögnuði, en Jenner gaf fylgjendum sínum á Instagram innsýn í glæsilega afmælisferð sína þar sem hún naut alls þess besta sem Ítalía hefur upp á að bjóða.
Hún fór meðal annars í lautarferð á glæsilegar vínekrur, eyddi kvöldstund í pastagerð, sleikti sólina og fagnaði fram á nótt í góðra vina hópi.