Veiðieftirlitsmenn sjá minna brottkast í drónaflugi

Fiskistofa býr yfir öflugum drónum sem hafa verið notaðir við …
Fiskistofa býr yfir öflugum drónum sem hafa verið notaðir við eftirlit með veiðum. mbl.is/Árni Sæberg

„Heilt yfir má telja að það hafi dregið úr brott­kasti. Ástandið er engu að síður það að brott­kast er greint í 20% flug­ferða það sem af er ári,“ seg­ir Elín B. Ragn­ars­dótt­ir, sviðsstjóri veiðieft­ir­lits hjá Fiski­stofu, í sam­tali við 200 míl­ur sem fylg­ir Morg­un­blaðinu í dag.

Hlut­fallið er tölu­vert minna en 2021 þegar sást brott­kast í 44,26% af eft­ir­lits­flugi stofn­un­ar­inn­ar og 30,92% árið 2022.

„Ef horft er á ein­stök veiðarfæri þá má sjá að það er hækk­un í greindu brott­kasti á hand­færa­veiðum en veru­lega hef­ur dregið úr brott­kasti á grá­sleppu­net­um,“ seg­ir Elín.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í blaði 200 mílna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: