Færeyskur reynslubolti til First Water

Heðin N. Joensen hefur yfir 30 ára reynslu af fiskeldi …
Heðin N. Joensen hefur yfir 30 ára reynslu af fiskeldi og endurnýtingu vatnskerfa.

Land­eld­is­fyr­ir­tækið First Water, áður Land­eldi hf., hef­ur ráðið Heðin N. Joen­sen frá Fær­eyj­um í stöðu eld­is­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. 

Heðin hef­ur yfir 30 ára reynslu af fisk­eldi og end­ur­nýt­ingu vatns­kerfa. Heðin, sem hef­ur störf á föstu­dag, hef­ur und­an­far­in átta ár starfað sem fram­leiðslu­stjóri Hidd­en­fjord í Fær­eyj­um.

Á ár­un­um 2004 til 2015 var hann vinnslu­stjóri Kald­baks í Fær­eyj­um og hafði þar um­sjón með vörumerk­inu Vik­ing Sea­food, sem síðar varð Bakkafrost, og fram­leiðslu sil­ungs og lax. Þar á und­an starfaði Heðin fyr­ir Smoltstöðina í Svínoy þar sem hann hafði um­sjón með ferskvatns­eldi um sex ára skeið.

For­stjóri First Water, Eggert Þór Kristó­fers­son, kveðst í til­kynn­ingu vera gríðarlega ánægður með ráðning­una. 

„Við bind­um mikl­ar von­ir við að hann muni leggja mikið til í þeim vexti sem fé­lagið stefn­ir að á næstu árum. Hann hef­ur átt stór­an þátt í þeim góða ár­angri sem Hidd­en­fjord í Fær­eyj­um hef­ur náð, en það er eitt fram­bæri­leg­asta lax­eld­is­fyr­ir­tækið í Fær­eyj­um að okk­ar mati. Við hjá First Water ger­um okk­ur grein fyr­ir því að mannauður­inn er eitt það allra verðmæt­asta sem fé­lag eins og okk­ar get­ur átt og Heðin verður lyk­ilþátt­ur í þeirri þekk­ingu sem við erum að byggja upp inn­an fé­lags­ins,“ er haft eft­ir hon­um.

First Water starf­ræk­ir seiðaeld­is­stöð við Hvera­gerði og áframeld­is­stöð við Þor­láks­höfn.

Fé­lagið hef­ur lokið um­hverf­is­mati og hef­ur öðlast öll leyfi til að ala ár­lega um 8 þúsund tonn af laxi, en mark­mið fé­lags­ins er að fram­leiðslu­geta fé­lags­ins verði á end­an­um um 43 þúsund tonn á ári. Meðal hlut­hafa First Water eru frum­kvöðlar, stjórn­end­ur og starfs­menn, auk fjár­festa. Stærsti hlut­hafi First Water er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir hf. með 40% hlut.

mbl.is