Ekkert lát á göngu strokulaxa í árnar

Átta laxar voru háfaðir úr laxastiganum í Blöndu í dag. …
Átta laxar voru háfaðir úr laxastiganum í Blöndu í dag. Það gerir nítján eldislaxa á einni viku. Ljósmynd/Guðmundur Haukur

Ekk­ert lát er á til­kynn­ing­um um eld­islaxa í ánum á Vest­an­verðu land­inu. Átta eld­islax­ar voru háfaðir upp úr laxa­stig­an­um í Blöndu í dag og hafa sam­tals nítj­án slík­ir verið tekn­ir þar á viku. Eld­islax veidd­ist í Hóp­inu í dag, og hef­ur hann vænt­an­lega verið á leið upp í Víðidalsá.

Það er stutt á milli hlát­urs og grát­urs í Miðfjarðará. þar veidd­ist í gær glæsi­leg­ur 101 sentí­metra hæng­ur. Sá stærsti í sum­ar og vakti at­hygli fyr­ir flott og víga­legt út­lit.

Eldislax sem veiddist í Miðfirði í dag í Veiðihyl.
Eld­islax sem veidd­ist í Miðfirði í dag í Veiðihyl. Ljós­mynd/​Miðfjarðará

Í morg­un veidd­ist hins veg­ar eld­islax í Veiðihyl og var hann jafn óvel­kom­inn og sá fyrr­nefndi var happa­feng­ur.

Þessi sporður er illa farinn og tilheyrir laxinum úr Miðfirði …
Þessi sporður er illa far­inn og til­heyr­ir lax­in­um úr Miðfirði í morg­un. Ljós­mynd/​Miðfjarðará

Fjór­ir lax­ar veidd­ust í Laxá á Refa­sveit fyr­ir nokkr­um dög­um og líta þeir út fyr­ir að vera eld­islax­ar. Þeir eru þó minni en þeir sem kennd­ir eru við Pat­reks­fjörð.

Eina áin á Norð–Vest­ur­landi þar sem hægt er að loka á göngu laxa og ná þeim, er Blanda. Laxa­stig­inn í henni gef­ur þessa mögu­leika. Eins og fyrr seg­ir hafa nítj­án slík­ir lax­ar náðst á viku en þeir voru mætt­ir fyrr. Það vitn­ar lax í Svar­tá um. 

Vax­andi áhyggj­ur veiðifé­laga á Vest­an­verðu land­inu eru skilj­an­leg­ar, sér­stak­lega í ljósi þess að ómögu­legt er að meta magn þess­ara fiska og hversu langt fram eft­ir hausti þeir geta verið að mæta. Lax­arn­ir sem háfaðir voru í Blöndu í dag voru lúsug­ir og því greini­lega að mæta úr sjó.

Laxarnir úr Laxá á Refasveit. Þeir eru öðruvísi en
Lax­arn­ir úr Laxá á Refa­sveit. Þeir eru öðru­vísi en "Pat­reks­firðing­arn­ir" en það leyn­ir sér ekki að þess­ir koma úr eldi. Ljós­mynd/​Aðsend

 Um­hverf­is­slysið er staðreynd og um­fangið vex með hverj­um deg­in­um. Eins og við greind­um frá fyrr í dag hef­ur Haf­rann­sókna­stofn­un greint 26 laxa úr ís­lensk­um laxveiðiám sem strokulaxa frá Arctic Sea Farm sem er með sjókví­ar í ná­grenni Pat­reks­fjarðar. Tug­ir laxa bíða grein­ing­ar.

mbl.is