Guðmundur Gíslason segir upp forstjórastöðu

Guðmundur Gíslason, forstjóri Ice Fish farm, hefur ákveðið að láta …
Guðmundur Gíslason, forstjóri Ice Fish farm, hefur ákveðið að láta af störfum, en hann mun taka að sér nýtt hlutverk innan samstæðunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmund­ur Gísla­son hef­ur óskað eft­ir því við stjórn Ice Fish Farm að láta af störf­um sem æðsti stjórn­andi fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins sem starf­rækt er á Aust­fjörðum. Hann mun í fram­hald­inu taka að sér nýtt hlut­verk inn­an sam­stærðunn­ar og vinna að skipu­lagn­ingu sölu afurða.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­inn­ar.

Guðmund­ur hef­ur verið í leiðtoga­hlut­verki hjá fyr­ir­tæk­inu um langt skeið og gegndi stöðu stjórn­ar­for­manns Fisk­eld­is Aust­fjarða ehf. áður en það sam­einaðist Löx­um ehf. und­ir merkj­um Ice Fish Farm, en stærstu hlut­haf­ar sam­einaðs fé­lags eru norska eign­ar­halds­fé­lagið Måsøval Eiendom og Ísfé­lag hf.

„Það hef­ur verið ótrú­legt ferðalag með frá­bær­um sam­starfs­mönn­um að vera for­stjóri Ice Fish á tíma mik­ils vaxt­ar og upp­bygg­ingu nýrr­ar og sjálf­bærr­ar at­vinnu­grein­ar á Íslandi und­an­far­in 12 ár. Ég hlakka mikið til að halda áfram að starfa fyr­ir og styðja fé­lagið í framtíðinni með því að halda áfram að þróa markaði fyr­ir Ice Fish Farm,“ er haft eft­ir Guðmundi í til­kynn­ing­unni.

„Guðmund­ur hef­ur verið sann­ur frum­kvöðull og leiðtogi Ice Fish frá ár­inu 2012 á tíma­bili þar sem fyr­ir­tækið hef­ur farið frá því að vera á hug­mynda­stigi yfir í að verða lyk­ilaðili í nýj­um sjálf­bær­um ís­lensk­um iðnaði. Ég er mjög þakk­lát­ur fyr­ir það sem hann hef­ur lagt af mörk­um og hlakka til áfram­hald­andi sam­starfs okk­ar á kom­andi árum,“ seg­ir Asle Rønn­ing, stjórn­ar­formaður Ice Fish Farm.

Stjórn fé­lags­ins hef­ur þegar hafið störf við að finna arf­taka Guðmund­ar og er áætlað að leit­in muni taka nokkra mánuði, en Guðmund­ur mun gegna starfi for­stjóra þar til nýr for­stjóri tek­ur við.

mbl.is