Neyðarfundur með matvælaráðherra

Töluvert hefur fundist af eldislaxi í ám Íslands upp á …
Töluvert hefur fundist af eldislaxi í ám Íslands upp á síðkastið. Fundað verður um ástandið í Matvælaráðuneytinu í dag. Samsett mynd

Neyðar­fund­ur verður hald­inn í dag í mat­vælaráðuneyt­inu til þess að ræða erfðablönd­un eld­islaxa við villta Atlants­hafslax­inn. Gunn­ar Örn Peter­sen, fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­bands veiðifé­laga, seg­ist von­ast til þess að mat­vælaráðherra muni bregðast strax við ástand­inu.

„Við erum að fara að hitta mat­vælaráðherra og starfs­fólk ráðuneyt­is­ins, þó fyrr hefði verið. Ástandið verður bara verra með hverj­um deg­in­um út af þessu eld­islaxa­fári sem er í gangi,“ seg­ir Gunn­ar í sam­tali við mbl.is.

„Við von­umst til þess að viðbrögð stjórn­valda verði skýr og komi strax með bein viðbrögð við því sem er að ger­ast núna,“ seg­ir Gunn­ar og bæt­ir við að það séu eng­ar ýkj­ur að um sé að ræða neyðar­fund.

Sjókví­eldi verði stöðvað

Tölu­vert hef­ur fund­ist af eld­islaxi í ám Íslands upp á síðkastið. Til dæm­is voru níu eld­islax­ar háfaðir úr laxa­stig­an­um í Blöndu í gær.

Gunn­ar seg­ir að taka þurfi á ástand­inu í ám lands­ins strax. Hann seg­ir eðli­legt að það sé gert á kostnað þeirra sem misst hafa eld­islax úr kví­um sín­um. Það þurfi að ganga á það að sækja fisk­inn í árn­ar til þess að koma sem mest í veg fyr­ir erfðablönd­un.

„Það er samt sem áður ekki aðferð sem við viður­kenn­um sem tæka. Ekki er hægt að ná öll­um fiskn­um. Þetta eru ekki mót­vægisaðgerðir sem rétt­læta það að megi halda eldi áfram,“ seg­ir Gunn­ar Örn.

„Síðan þarf að setja fram áætl­un sem miðar að því að hætta sjókví­eldi fyr­ir fullt og allt, það er ekk­ert flókn­ara en það.“

mbl.is

Bloggað um frétt­ina