Fjölgar eftirlitsmönnum: „Mjög alvarleg atvik“

Svandís segir að horft verði til þeirra alvarlegu atvika þegar …
Svandís segir að horft verði til þeirra alvarlegu atvika þegar eldislaxar hafa sloppið úr kvíum.

Svandís Svavars­dótt­ir mat­vælaráðherra seg­ir að horft verði til þeirra „al­var­legu“ at­vika þar sem lax­ar hafa sloppið úr sjókví­um og gengið í laxveiðiár við það mat sem ligg­ur að baki heild­ar­stefnu­mót­um fyr­ir fisk­eldi í heild­ina sem nú sé unnið að. Hún tel­ur ekki tíma­bært að út­tala sig um það hvort skaðinn á nátt­úru­leg­um stofn­um sé óaft­ur­kræf­ur. 

„Við erum nú með á þing­mála­skrá heild­ar­end­ur­skoðun á lög­um um fisk­eldi og þar þurf­um við að horfa til þeirra at­vika sem upp hafa komið. Í fram­hald­inu að meta það hvort þessi til­vik séu þess eðlis að þau kalli á nýja og breytta sýn á upp­bygg­ingu og framtíð þess­ar­ar grein­ar,“ seg­ir Svandís.

Eft­ir­lits­mönn­um fjölg­ar úr fimm í fjór­tán 

Hún seg­ir að rekst­araðilar beri ábyrgð á því að fara eft­ir regl­ur en einnig þurfi að horfa til þess hvernig eft­ir­lit er byggt upp og hversu þétt það er.

„Við ger­um ráð fyr­ir því í fjár­mála­áætl­un að það þurfi að efla eft­ir­litið um­tals­vert. Raun­ar er gert ráð fyr­ir að eft­ir­lits­mönn­um fjölgi úr fimm í fjór­tán vegna þess að eft­ir­litið hef­ur ekki verið nægj­an­lega öfl­ugt. Síðan að horfa til þess hvort að viður­lög séu nægj­an­lega af­ger­andi,“ seg­ir Svandís.

Hún seg­ir að of­an­greint verði kynnt á sam­ráðsgátt stjórn­valda þegar þar að kem­ur.

Brugðist við 

Spurð hvort að skaðinn sé ekki óaft­ur­kræf­ur í ljósi þess að eld­islax­inn er þegar geng­inn í ár víðs veg­ar um landið, þá seg­ir Svandís ljóst að at­vik­in séu al­var­leg.

„Ég hef það frá mínu fólki að það dylst eng­um að þetta eru mjög al­var­leg at­vik. Það ligg­ur al­gjör­lega fyr­ir og við því þarf að bregðast við. Bæði til skemmri og lengri tíma. Það er það sem verið er að horfa til og verður gert á vett­vangi eft­ir­lits­stofn­ana og í end­ur­skoðun á reglu­verki og lagaum­hverfi,“ seg­ir Svandís.

En til árétt­ing­ar; er ekki skaðinn þegar óaft­ur­kræf­ur?

„Ég ætla ekki að tjá mig um ein­staka at­vik. Til þess þurf­um við að fá nán­ari niður­stöðu frá þeim stofn­un­um sem hafa það úr­lausn­ar­efni,“ seg­ir Svandís. 

mbl.is