Harma tjón vegna laxaflótta

Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish, harmar óhappið sem …
Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish, harmar óhappið sem varð í Patreksfirði í ágúst.

„Það sem helst stend­ur upp úr er að við bjóðum upp á að farið verði í skönn­un á þess­um ám sem und­ir liggja og finn­ist eld­islax verði hann tek­inn út,“ seg­ir Daní­el Jak­obs­son, fram­kvæmda­stjóri viðskiptaþró­un­ar hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish, í sam­tali við mbl.is um slepp­ingu eld­islax úr sjókví í Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði sem kom í ljós 21. ág­úst.

Eins og mbl.is greindi nýlega frá fjölg­ar þeim til­fell­um ört þar sem laxveiðimenn verða var­ir við laxa sem grun­semd­ir benda til að séu eld­islax­ar ættaðir frá Pat­reks­firði.

„Við reyn­um auðvitað að draga úr því óhappi sem þarna varð,“ held­ur Daní­el áfram og bæt­ir því við að skönn­un­inni sem hann ræðir um hafi verið beitt í Nor­egi með góðum ár­angri.

„Þar eru fyr­ir­tæki sem hafa komið að þessu og eru til­bú­in að gera þetta og fara hratt og vel í það. Auðvitað ber Fiski­stofa ábyrgð á þessu og það er hún sem myndi fram­kvæma þetta. Svo eru það veiðirétt­ar­haf­ar sem meta hvort þeir vilji láta gera þetta,“ seg­ir fram­kvæmda­stjór­inn enn frem­ur.

Von­andi á allra næstu dög­um

Seg­ir hann skönn­un­ina geta lág­markað tjón veiðrétt­ar­haf­anna, „ég held að Fiski­stofa hafi rætt þetta við Lands­sam­band veiðirétt­ar­hafa í dag og ég held að það sé bara verið að bíða eft­ir svör­um frá þeim um hvað þeir vilji gera. Maður skyldi nú ætla að þeir myndu vilja fram­kvæma þetta svo menn verða von­andi komn­ir af stað í þetta á allra næstu dög­um,“ seg­ir Daní­el Jak­obs­son að lok­um.

Arctic Fish kveðst í frétta­til­kynn­ingu harma að eld­islax hafi sloppið úr kví­um fyr­ir­tæk­is­ins í Pat­reks­firði.

„Þetta er mikið áhyggju­efni fyr­ir okk­ur. Þess vegna höf­um við gripið til aðgerða til að draga úr mögu­leg­um nei­kvæðum áhrif­um af slepp­ing­unni. Við telj­um okk­ur vita hvernig göt­in mynduðust og vinn­um nú að því að tryggja að þetta ger­ist ekki aft­ur,“ seg­ir þar meðal ann­ars.

mbl.is