Eftirlit Fiskistofu á þolmörkum

Fullyrt er í greinargerð fjárlagafrumvarpsins að eftirlit Fiskistofu sé komið …
Fullyrt er í greinargerð fjárlagafrumvarpsins að eftirlit Fiskistofu sé komið að þolmörkum og eru veittir fjármunir til fjölgun eftirlitsmanna. mbl.is/Árni Sæberg

„Ljóst er að styrkja þarf veiðieft­ir­litið sem komið er að þol­mörk­um,“ seg­ir í grein­ar­gerð fjár­laga­frum­varps rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þar er gert ráð fyr­ir að fjár­heim­ild hækki um 45 millj­ón­ir til fjölg­un­ar stöðugilda eft­ir­lits­manna Fiski­stofu og er gert ráð fyr­ir að fram­lagið hækki á kom­andi árum og verði nærri 100 millj­ón­um árið 2026.

Áhersla hef­ur verið lögð á að taka í notk­un nýja tækni við eft­ir­lit Fiski­stofu und­an­far­in ár í þeim til­gangi að auka skil­virkni, en fram kom í eft­ir­fylgniút­tekt Rík­is­end­ur­skoðunar í júní að mat­vælaráðuneytið og Fiski­stofa hafa ekki brugðist með viðun­andi hætti við úr­bóta­til­lög­um stofn­un­ar­inn­ar frá ár­inu 2018 í sam­bandi við eft­ir­lit stofn­an­anna með vigt­un sjáv­ar­afla, brott­kasti og samþjöpp­un afla­heim­ilda.

Fjár­laga­frum­varpið ger­ir ráð fyr­ir að út­gjöld rík­is­sjóðs vegna mála­flokks sjáv­ar­út­vegs og fisk­eld­is verði 7.727,5 millj­ón­ir króna sem er 12,5% meira en gert var ráð fyr­ir á fjár­lög­um vegna árs­ins 2023 og 3,5% aukn­ing miðað við rík­is­reikn­ing árs­ins 2022.

Hækk­un fjár­heim­ilda vegna nýrra og auk­inna verk­efna nem­ur 623 millj­ón­um króna og hækk­un vegna launa- og verðlags­bóta nem­ur 441 millj­ón. Á móti kem­ur 305 millj­óna aðhaldskrafa og hundrað millj­óna lækk­un vegna tíma­bund­inna heim­ilda sem veitt­ar voru á síðasta ári.

Þá seg­ir í grein­ar­gerð að þrjú mark­mið liggi til grund­vall­ar fjár­veit­ing­um til mála­flokks­ins. Fyrst að skapa sjáv­ar­út­vegi skil­yrði til auk­inn­ar verðmæta­sköp­un­ar með sjálf­bæra nýt­ingu og vist­kerf­is­nálg­un að leiðarljósi, draga úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda við fisk­veiðar og skapa fisk­eldi skil­yrði til auk­inn­ar verðmæta­sköp­un­ar með sjálf­bæra nýt­ingu og vist­kerf­is­nálg­un að leiðarljósi.

Drónaeftirlitið hefur ekki skilað nægri skilvirkni eitt og sér til …
Dróna­eft­ir­litið hef­ur ekki skilað nægri skil­virkni eitt og sér til að bæta upp eft­ir­litsþörf. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Efl­ing rann­sókna

Þá aukast fjár­heim­ild­ir Mat­væla­stofn­un­ar um 126 millj­ón­ir króna til að auka eft­ir­lit með sjókvía­eldi og tryggja full­nægj­andi eft­ir­lit með skrán­ing­um og innra eft­ir­liti sjókvía­eld­is­fyr­ir­tækja. Áætlað er að fram­lagið muni hækka á kom­andi árum og verði í kring­um 230 millj­ón­ir króna frá og með ár­inu 2026.

Gert er ráð fyr­ir að út­gjöld auk­ist um 126 millj­ón­ir til að „styrkja verk­efni Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á sviði burðarþols­mats fjarðakerfa, þ.m.t. eld­is­svæðaskipt­ingu, mat á um­hverf­isáhrif­um sjókvía­eld­is, áhættumat erfðablönd­un­ar og rann­sókn­ir á dreif­ingu laxa- og fiskilús­ar. Gert er ráð fyr­ir að fram­lagið fari hækk­andi á kom­andi árum og verði komið í kring­um 226 m.kr. frá og með ár­inu 2026.“

Mesta hækk­un fjár­heim­ilda í mála­flokkn­um er tíma­bund­in hækk­un fjár­heim­ild­ar vegna hvala­taln­inga á ár­inu 2024 og nem­ur hún 200 millj­ón­um króna. Hvala­taln­ing átti að fara fram á þessu ári en henni var frestað þar sem ekki fékkst samþykkt fjár­heim­ild á síðasta ári.

Fjár­heim­ild­ir til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar hækka um 180 milj­ón­ir króna í þeim til­gangi að efla rann­sókn­ir stofn­un­ar­inn­ar „með það að mark­miði að skapa sjáv­ar­út­vegi skil­yrði til auk­inn­ar verðmæta­sköp­un­ar með sjálf­bæra nýt­ingu og vist­kerf­is­nálg­un að leiðarljósi,“ að því er seg­ir í grein­ar­gerðinni. Gert er ráð fyr­ir að fram­lagið fari hækk­andi á kom­andi árum og verði komið í 630 millj­ón­ir króna árið 2026.

Fram kem­ur að til­lag­an sé hluti af „aðgerðum stjórn­valda til að bregðast við áskor­un­um í sjáv­ar­út­vegi og fisk­eldi með því að efla stjórn­sýslu­lega um­gjörð þess­ara mik­il­vægu mála­flokka og stuðla þannig að auk­inni verðmæta­sköp­un fyr­ir ís­lenskt þjóðarbú til framtíðar.“ Er fram­lag­inu meðal ann­ars ætlað að tryggja bet­ur rekst­ur stofn­un­ar­inn­ar, efla rann­sókn­ir á vist­kerf­um og auka út­halds­daga rann­sókna­skipa.

Auknar fjárveitingar eru veittar til að efla hafrannsóknir.
Aukn­ar fjár­veit­ing­ar eru veitt­ar til að efla haf­rann­sókn­ir. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un: Svan­hild­ur Eg­ils­dótt­ir
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: