Það væsir sannarlega ekki um áhrifavaldinn og förðunarfræðinginn Fanney Dóru Valgeirsdóttur, en hún er stödd í Gdansk í Póllandi um þessar mundir þar sem hún nýtur veðurblíðunnar til hins ýtrasta.
Fanney Dóra hefur verið dugleg að deila fallegum myndum frá ferðalagi sínu í Gdansk á samfélagsmiðlum, en af myndum að dæma hefur veðrið leikið við hana. Þá hefur hún notið þess að skoða sig um borgina í góðum félagsskap.