Forsvarsmenn Arctic Fish segjast sýna því skilning að Matvælastofnun hafi óskað eftir opinberri rannsókn á meintum brotum fyrirtækisins á lögum um fiskeldi eftir að tilkynnt var um tvö göt á kví fyrirtækisins við Kvígindisdal í Patreksfirði í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Arctic Fish sendi frá sér nú í kvöld.
„Arctic Fish lítur málið mjög alvarlegum augum og hefur unnið að rannsókn málsins í nánu samstarfi með Matvælastofnun og Fiskistofu. Stjórnendur Arctic Fish munu vinna áfram að rannsókn málsins með þar til bærum yfirvöldum. Fyrirtækið hefur einnig unnið að innri rannsókn á atvikinu og hefur nú þegar afhent þau gögn til yfirvalda,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Þar er jafnframt vitnað í Stein Ove Tveiten framkvæmdastjóra: „Okkur þykir mjög miður að eldislaxar í okkar eigu hafi strokið úr sjókvíunum í Patreksfirði. Við höfum unnið dag og nótt að því að lágmarka áhrif stroksins og fjöldi starfsmanna fyrirtækisins hefur komið að innri rannsókn á atvikinu. Við sýnum því jafnframt skilning að Matvælastofnun hefur óskað eftir opinberri rannsókn á tilkomu gatanna í sjókvíunum í Patreksfirði, enda er það sá farvegur sem lögin mæla fyrir um að málið fari í. Við drögum lærdóm af því sem átti sér stað og vinnum áfram að því að koma í veg fyrir strok úr kvíum, eftir fremsta megni.” segir Stein Ove Tveiten.